fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Jón Óttar biður Helga Seljan afsökunar – „Ég sé mikið eftir því“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 27. ágúst 2020 22:14

Samsett mynd- Jón Óttar og Helgi Seljan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag greindi Kjarninn frá því að Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður sem nú starfar hjá Samherja, hefði áreitt fjölmiðlamanninn Helga Seljan með því að sitja fyrir honum á kaffihúsi og senda honum ítrekað skilaboð. Nú hefur Jón Óttar boðist afsökunar á hegðun sinni gagnvart Helga Seljan. Þetta kemur fram í svari sem hann sendi Kjarnanum.

SJÁ EINNIG: Jón Óttar sakaður um ítrekaða áreitni í garð Helga Seljan

Þar segir Jón það rangt af sér að senda umrædd skilaboð og að þau endurspegli dómgreindarbrest sinn. Hann hafi verið undir miklu álagi og að hann sjái mikið eftir skilaboðunum og biður Helga Seljan afsökunar.

Jón vill þó meina að hann hafi ekki setið fyrir Helga á kaffihúsinu Kaffifélagið, hann hafi verið þar gestur í mörg ár. Þá tekur hann fram að skilaboðin hafi verið af hans eigin frumkvæði og án vitundar Samherjamanna.

Þess má geta að DV reyndi að ná tali af Jóni í dag. Hann svaraði símanum sínum, sagðist ekki heyra í blaðamanni og skellti síðan á. Þegar blaðamaður reyndi að hringja aftur í Jón þá náðist ekki lengur í símann hans, svo virðist sem hann hafi slökkt á símanum.

Yfirlýsingu Jóns Óttars sem birtist á Kjarnanum má lesa hér að neðan:

„Vefritið Kjarn­inn fjallar í dag um SMS-skila­boð sem ég sendi Helga Selj­an, frétta­manni hjá Rík­is­út­varp­inu. Það var rangt af mér að senda umrædd skila­boð, þau end­ur­spegla dóm­greind­ar­brest af minni hálfu og ég sé mikið eftir því að hafa sent þau. Ég vil nota þetta tæki­færi til þess að biðja Helga Seljan afsök­unar á þessum send­ing­um.

Án þess að ég vilji reyna að rétt­læta skila­boðin og efni þeirra finnst mér mik­il­vægt að fram komi að ég hef und­an­farið verið undir miklu álagi. Einkum vegna nei­kvæðrar umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mig per­sónu­lega. Nær öll skila­boðin voru send fyrr í þessum mán­uði þegar umrædd fjöl­miðlaum­fjöllun var hvað mest áber­andi með til­heyr­andi óþæg­indum fyrir mig og fjöl­skyldu mína.

Þá finnst mér rétt að und­ir­strika að heim­sóknir mínar á kaffi­húsið Kaffi­fé­lagið við Skóla­vörðu­stíg voru ekki til þess að elta Helga Selj­an, eins og kemur fram í umfjöllun Kjarn­ans, enda hef ég verið við­skipta­vinur kaffi­húss­ins í mörg ár. Hafa heim­sóknir mínar þangað ekk­ert með Helga að gera og er því umfjöllun Kjarn­ans röng hvað þetta snert­ir. Ég get hins vegar ekki stýrt því hvernig Helgi Seljan upp­lifir sam­skipti okkar í gegnum árin.

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hef ég sinnt ráð­gjöf fyrir Sam­herja hf. sem verk­taki. Tekið skal fram að stjórn­endur félags­ins höfðu ekki vit­neskju um skila­boð mín til Helga. Mér finnst miður ef þessi gagnrýniverða hátt­semi mín verði á ein­hvern hátt bendluð við félagið og starfs­fólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt