fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Guðni segir heimsendi ekki í nánd: „Hún var hreinlega ofsótt í þættinum“ – Þeir sem efast sagðir falsspámenn og boðberar fáfræði

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. janúar 2020 09:40

Guðni Ágústsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef lifað af nokkrar harkalegar spár um heimsendi,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar talar Guðni meðal annars um hlýnun jarðar og spár sumra þess efnis að jörðin muni farast í tíð núverandi kynslóðar.

„Hver áramót marka nýjan tíma. Nú ættu þau að vera hlaðin bjartsýni og krafti og vilja til að takast á við hvert það verkefni sem að höndum ber, mannkyninu og jörðinni til blessunar. En tilfinningar og vonandi öfgaspár leiða okkur að helvegi svartra skugga, um að jörðin farist í tíð núverandi kynslóðar. Í umræðunni eru efasemdarmenn, sem einnig styðjast við vísindalegar forsendur, sagðir falsspámenn og um þá marga er rætt sem boðbera fáfræðinnar. Ef þú vilt hafa frið ferðu í umræðuna með kór „rétttrúnaðarins,“ og velur þér að gráta og fylgja fjöldanum og fullyrðingunni um að jörðin farist innan 30 ára og hamfarirnar séu manninum einum að kenna.“

Guðni kveðst hafa tekið eftir því í Kastljósi RÚV í haust þegar vísindalærð kona efaðist um að svona væri komið og studdist við vísindaleg rök. „Hún var hreinlega ofsótt í þættinum sem hin „bersynduga.“

Fjórar heimsendaspár á 40 árum

Guðni segist hafa lifað af nokkrar heimsendaspárnar. „Kjarnorkusprengingin var stærsta ógn æsku minnar. Nú er upp runnin fjórða heimsendaspáin á 40 árum. Fyrst var það ósonlagið, svo var það súra regnið, síðan kom þúsaldarbyltingin eða 2000 vandinn. Og nú er það hamfarahlýnun af mannavöldum. Dómsdagur er sem sé í nánd, en þessi fullyrðing hefur fylgt manninum frá örófi alda.“

Hann segist taka mikið mark á Páli Bergþórssyni veðurfræðingi en fagnar þó vakningu unga fólksins og baráttu hinnar sænsku Gretu Thunberg.

„Sú barátta vinnur gegn brjálæðislegri græðgi og gegn öfgum hamfaraflutninga og sóun samtímans, verði hún ekki að hamfarahræðslu. Okkur ber að draga úr of mikilli neyslu og margt er hægt að gera til að vinna gegn hlýnun jarðarinnar.“

„Þarna liggur hundurinn grafinn“

Guðni vísar svo í Pál Bergþórsson sem sagði á Facebook fyrir skemmstu að hamfarahlýnun jarðar væri vonandi markleysa. Hann hafi raki fjölgun mannkyns í gegnum áratugina; jarðarbúar hafi verið tveir milljarðar árið 1950 en 8 milljarðar árið 2020. „Með sömu þróun væri mannfjöldinn orðinn 14 milljarðar, árið 2090. Og 20 milljarðar, árið 2160. Páll telur að fjölgunin sé að nálgast það sem jörðin ræður við og að hlýnunin fylgi hverri milljarða aukningu fólks. „Þarna liggur hundurinn grafinn.“

Guðni segir að stóri vandinn sé iðnbyltingin, óhófið, kolin, jarðolían og gasið, plastið og gerviefnin. „Nú nær sjór og gróður að taka upp helming þess koltvísýrings sem berst inn í andrúmsloftið. Hinn helmingurinn safnast fyrir í lofthjúpi jarðar og eykur gróðurhúsaáhrifin. Því er ástand loftslagsmálanna verkefni, sem þarf að leysa, en ekki dauðadómur yfir jörð og mannkyni.“

Draga þarf úr bruðli

Guðni segist ekki eiga sér neinn betri vísindamann eða spámann til að fylgja í þessum efnum en Pál Bergþórsson. Ekki verði deilt um að verkefnið sé að bjarga jörðinni fyrir komandi kynslóðir. Mikilvægt sé að brauðfæða og mennta allt fólk jarðarinnar og framleiða matinn sem næst hverjum munni.

„Í því sambandi ber að minna á að landbúnaðarvörurnar framleiðist hér heima en komi ekki til okkar erlendis frá með flugvélum. Draga þarf úr öllu bruðli og muna að sjórinn tekur ekki endalaust við. Þetta er verkefni hverrar fjölskyldu, atvinnulífsins og ríkisstjórna þjóðanna. En stærsti sigurinn mun vinnast ef Sameinuðu þjóðirnar koma sér saman um markvissar reglur og þeim verði fylgt. Lögmálin um köld og hlý veðurtímabil munu engu að síður halda áfram. Páll segir hinsvegar að nú fari að kólna á ný og mannkyni jarðar hætti að fjölga. Þar liggur ákveðin lausn.“

Guðni hvetur fólk til að halda áfram með bjartsýni og trú að vopni.

„Við búum við hita og rafmagn úr endurnýjanlegum orkulindum og getum bætt okkar stöðu til sjávar og sveita. Heimurinn á tækifæri í sólarorku, vindorku og sjávarfallaorku og Kínverjar eru að farnir að virkja jarðvarmann. Þannig mætti áfram telja. Það er lúxusvandi sem tröllríður háttalagi okkar eins og annarra efnaðra þjóða og gerviefnin og ruslahaugarnir vitna um það. „Grátur í nútíð er framtíðarböl.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi