fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Anna segir grein Steinunnar bregðast brotaþolum kynferðisofbeldis: „Orðræða sem þessi sendir alvarleg skilaboð út í samfélagið“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 3. nóvember 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

“Þann 1. nóvember síðastliðin birtist grein á vefmiðli Fréttablaðsins eftir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur. Í greininni fagnar höfundur nýföllnum dómum í málum Freyju Haraldsdóttur og Atla Rafns Sigurðssonar. Að mati greinarhöfundar hafa málsaðilar beggja mála mætt mannfjandsamlegum viðhorfum sem lögðu grunninn að þeim brotum sem þau urðu fyrir. Steinunn Ólína segir að það sé ekki síst #metoo byltingin sem lagði grunninn að þessum viðhorfum og að í kjölfar #metoo hafi konur flykkst fram á vígvöllinn til að bera aðra sökum án þess að þurfa að standa fyrir máli sínu.“

Svona hefst grein eftir Önnu Bentínu Hermansen sem birtist á Fréttablaðinu í dag. Í greininni eru skrif Steinunnar Ólínu varðandi dóminn í máli Atla Rafns tekin fyrir en Steinunn hefur verið mikið gagnrýnd fyrir orðin sem hún lét falla um málið. Meðfylgjandi greininni hennar Önnu Bentínu er undirskriftarlisti en tæplega 100 konur eru á listanum.

„Við undirritaðar viljum bregðast við þessum ummælum þar sem greinin lýsir afar skaðlegri orðræðu gagnvart brotaþolum kynferðisofbeldis almennt þó að ein manneskja, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, sé tekin fyrir í greininni, sem “sjálfskipaður leiðtogi brotaþola kynferðisofbeldis”. Orðræða sem þessi sendir alvarleg skilaboð út í samfélagið og hefur að engu trúverðugleika brotaþola kynferðisofbeldis.

Í þeim undantekningartilfellum þegar gerandinn játar að hafa beitt kynferðisofbeldi, sem á við um reynslu Þórdísar Elvu, þá kallar greinarhöfundur hann “meintan geranda”. Steinunn Ólína bætir um betur og segir brotaþola hafa “sagst” hafa orðið fyrir nauðgun, með það að markmiði að véfengja það ofbeldi sem Þórdís Elva varð fyrir. Samkvæmt greinarhöfundi er Þórdís Elva haldin hefndarfýsn og drottnunargirni með því að draga geranda sinn til ábyrgðar sem hann gekkst við sjálfur af fúsum og frjálsum vilja. Að okkar mati lýsir greinin þeim viðhorfum að frásagnir af kynferðisofbeldi séu marklausar nema þær fari í gegnum réttarkerfið og gerandinn hljóti dóm fyrir brot sitt.“

Anna segir nauðgun vera í eðli sínu ofbeldi þar sem drottnunargirni er í aðalhlutverki. „Það er frekar öfugsnúið að saka brotaþola kynferðisofbeldis um þær hvatir ef hann segir frá nauðgun fremur en gerandann fyrir að hafa nauðgað,“ segir Anna.

„Brotaþolar sjá slík viðhorf kristallast víða í samfélaginu og #metoo byltingin reis ekki síst upp gegn slíkum viðhorfum. #metoo sýndi samfélaginu hversu margar konur hafa reynslu af kynferðisbrotum sem hvergi eru skráð í lögregluskýrslum.

Staðreyndin er sú að fjölmargar konur sem verða fyrir kynferðisofbeldi segja aldrei frá því opinberlega og kæra ekki geranda/gerendur. Ekki síst vegna þess að aðeins í undantekningartilfellum hljóta þær áheyrn dómstóla. Konur sem segja frá kynferðisofbeldi opinberlega og hafa jafnvel kært ofbeldið eru líka tortryggðar, meira að segja þrátt fyrir að gerandi þeirra hafi játað verknaðinn. Grein Steinunnar Ólínu afhjúpar þann veruleika rækilega.“

Hún segir það vera algengt að konur sem segja frá kynferðisofbeldi, án þeirra leikreglna sem samfélaginu þykir þóknanlegt, séu sagðar vera mannorðsmorðingjar og að þær vegi að æru manna. Oft sé vegið að trúverðugleika þeirra kvenna og afar „mannfjandsamleg viðhorf“ mæti þeim. Það næri nauðgunarmenningu og gerendameðvirkni.

„Sama hvaða leikreglum þær fylgja mætir þeim iðulega tortryggni og það þrátt fyrir #metoo. Ef Steinunn Ólína telur það vera keppni í ofbeldi að niðurlægja fólk án dóms og laga er hún sigurvegari í þeirri keppni með þessari grein. Að hennar mati á bar­áttu­fólk gegn kynferðisofbeldi að setja hag brotaþola kynferðisofbeldis í forgang. Líklega er það eina atriðið í greininni sem við getum verið sammála um. Ef þessi grein átti að stuðla að því markmiði bregst hún hins vegar brotaþolum kynferðisofbeldis algjörlega.“

Hér fyrir neðan má sjá undirskriftarlistann.

Aðalheiður Alenu Jóhannsdóttir

Agnes Bára Aradóttir

Alexandra Rós Jóhannesdóttir

Anna Bentína Hermansen

Anna Soffía Víkingsdóttir

Aþena Mjöll Pétursdóttir

Ásgerður Jóhannesdóttir

Berglind Þórsteinsdóttir

Bergljót María Sigurðardóttir

Brynhildur Björnsdóttir

Brynhildur Yrsa Valkyrja

Brynja Bjarnadóttir

Candice Michelle Goddard

Edda Rún Aradóttir

Elsa Björk Harðardóttir

Elísabet Ýr

Emma Ásudóttir Árnadóttir

Erla Kr Bergmann

Elsa Björk Harðardóttir

Erla Elíasdóttir Völudóttur

Erla Einarsdóttir

Erna Dýrfjörð Stefánsdóttir

Eyrún Eva Gunnarsdóttir

Freydís Dögg Steindórsdóttir

Freyja Vals Sesseljudóttir

Friðgerður Ósk Jóhannsdóttir

Guðbjörg Ýr Valkyrja Guðbjargardóttir

Guðný Elísa Guðgeirsdóttir

Guðrún Helga Eyþórsdóttir

Gunna Róbertsdóttir

Hafdís Erla Jónudóttir

Hrafndís Katla

Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir

Halldóra Jónasdóttir

Helga Bjarnadóttir

Helga Gestsdóttir

Helga Rósa Atladóttir

Heiða Björg Hilmisdóttir

Heiða Valdís Ármann

Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir

Hjördís Guðlaugsdóttir

Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir

Hlíf Steinsdóttir

Hrund Ólafsdóttir

Inga María Vilhjálmsdóttir

Ingibjörg Eyfjörð Hólm

Magnea

Margrét Pétursdóttir

Margrét Baldursdóttir

Jennie Maria Katarina Jönsson

Karen Linda

Katrín Atladóttir

Katrín Ólafsdóttir

Kristin Johansen

Kristín Jónsdóttir

Kristín S. Bjarnadóttir

Kristín Helga Schiöth

Kristjana Einarsdóttir

Linda Björk

Lóa Baldvinsdóttir Andersen

Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir

Ósk Gunnlaugsdóttir

Ragna Björg Björnsdóttir

Ragna Ragnarsdóttir

Ragnheiður Helga Bergmann Hafsteinsdóttir

Rakel Sesselja Hostert

Salóme Mist Kristjánsdóttir

Sandra Rut Skúladóttir

Sara Björk Biering

Sigríður D. Aradóttir

Sigurbjörg Anna Guðnadóttir

Sigurlaug Lára

Sigrún Ósk Arnardóttir

Sigrún Sif Jóelsdóttir

Sjöfn Friðriksdóttir

Sunna Kristinsdóttir

Særós Rannveig Björnsdóttir

Tara Margrét

Tinna Björk Pálsdóttir

Unnur Mjöll

Vibeke Svala Kristinsdóttir

Þóra Kristín Þórsdóttir

Þórhildur Löve

Þórunn Vignisdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Kótelettan hefur safnað nærri 20 milljónum fyrir krabbameinsveik börn

Kótelettan hefur safnað nærri 20 milljónum fyrir krabbameinsveik börn
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Skýtur á menningu íslenskra samfélagsmiðlastjarna – „Athyglin er aðalgjaldmiðillinn og allt er notað í gróðaskyni“

Skýtur á menningu íslenskra samfélagsmiðlastjarna – „Athyglin er aðalgjaldmiðillinn og allt er notað í gróðaskyni“
Fréttir
Í gær

Íris Líf í samstarf við stórt íslenskt fyrirtæki – Afar ánægð með að þeir prúttuðu niður samninginn

Íris Líf í samstarf við stórt íslenskt fyrirtæki – Afar ánægð með að þeir prúttuðu niður samninginn
Fréttir
Í gær

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm