fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Halldór Auðar um skrif Steinunnar: „Sú pæling að þolandi geti raunverulega tekið valdið til baka og að það megi bara er ennþá framandi“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 2. nóvember 2019 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atli Rafn vann mál sem hann höfðaði gegn Borgarleikhúsinu á dögunum. Vakti það mikla athygli og umræðu í samfélaginu en ekki voru allir sammála um ágæti dómsins.

Steinunn Ólína tjáði sig um málið í gær en þar fagnaði hún dómnum og gagnrýndi harðlega skrif Þórdísar Elvu um málið. Skrif Þórdísar bentu meðal annars bendir á að skaðabætur til handa þolendum kynferðisbrota hafi einatt verið lægri en þær skaðabætur sem Atla Rafni voru dæmdar. Steinunn sakaði jafnframt Þórdísi um að hafa markaðssett kynferðisofbeldi sem hún varð sjálf fyrir með bókarskrifum og fyrirlestrum.

„Þór­dís Elva var áður sjálf­skipaður braut­ryðjandi á Ís­landi í af­hjúpun of­beldis­manna að amerískri fyrir­mynd og hvatti fórnar­lömb til þess að stíga fram og segja frá í hópi sviðs­lista­kvenna. Hún hafði gert slíkt sjálf og bætti um betur, því hún markaðs­setti of­beldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir með eftir­minni­legum hætti í bók, með fyrir­lestrum þar sem henni fylgdi meintur of­beldis­maður um allar álfur og gekkst við því að kalla sig nauðgara til að styðja rétt hennar til að segja frá og mæta of­beldis­manni sínum. Verkið vakti mikla at­hygli.“

Steinunn sagðist einnig viður­kenna að hún hafi hreina and­styggð á „þeirri drottnunar­girni og hefndar­fýsn sem birtist í þessu niður­lægjandi og sjálfs­upp­hefjandi verki Þór­dísar Elvu,“ en ekki hafa allir verið sáttir með þessi skrif Steinunnar. Einn þeirra sem gagnrýnir skrif Steinunnar er fyrrverandi borgarfulltrúinn Halldór Auðar Svansson en hann tjáði sig um málið á Facebook síðu sinni í dag.

„Ég man það mjög vel þegar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fór í uppgjörsferli með nauðgara sínum að sumum þótti þetta alveg forkastanlegt á þeim forsendum að hún væri að veita honum vettvang til að tjá sig, það væri of mikil gerendameðvirkni.

Nú er hins vegar komin fram sú skoðun að þetta sé alveg forkastanlegt á þeim forsendum að hún sé allt of hefnigjörn og stjórnlynd, að vera að þvinga ‘meintan ofbeldismann’ til að gangast við því að vera nauðgari, hún hafi verið of vond við hann.

Ég held að aðalvandamálið hérna sé að það þyki bara alveg forkastanlegt yfir höfuð að þolendur geri upp sín mál á sínum forsendum. Það er alltaf einhver sem finnst það of mikið eða of lítið svona eða hinsegin. Sú pæling að þolandi geti raunverulega tekið valdið til baka og að það megi bara er ennþá framandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna