fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Klevis var stunginn með hnífi á Austurvelli: Endaði lífið á Íslandi aðeins tvítugur – Fjölskylda hans þarf stuðning

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 9. desember 2017 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann heitir Klevis Sula, ungi maðurinn frá Albaníu sem lét lífið eftir hnífstunguárás á Austurvelli um síðustu helgi. Hann var aðeins tvítugur aldri, fæddur 31. mars árið 1997. Klevis bjó og starfaði á Íslandi. Um síðustu helgi var Klevis staddur á Austurvelli ásamt félaga sínum er kom til orðaskipta milli þeirra og 24 ára gamals Íslendings. Íslendingurinn lagði til beggja Albananna með hnífi og stakk hann Klevis mörgum sinnum. Hinn meinti árásarmaður situr nú í gæsluvarðhaldi.

Félagi Klevis er útskrifaður af sjúkrahúsi en Klevis sjálfur andaðist á föstudaginn. Nístandi sorg heltekur nú fjölskyldu unga mannsins en foreldrar hans eru komnir til Íslands. Klevis bjó hjá frænda sínum, Krist Ismailaj, hér á landi.

Það er alkunna að þegar dauðfall á sér stað þarf fjölskylda hins látna að standa straum af miklum útgjöldum á sama tíma og hún glímir við svo erfiða sorg að hún virðist óyfirstíganleg. Fjölskylda unga mannsins þarf nú að standa staum af útfararkostnaði auk þess að láta flytja líkið til Albaníu. Áður en til þess kemur er stefnt að því að halda minningarathöfn um Klevis hér á landi.

Vinir og velunnarar Klevis gangast nú fyrir fjársöfnun til styrktar fjölskyldunni svo henni auðnist að flytja jarðneska leifar unga mannsins heim til Albaníu og jarðsetja hann þar.

Styrktarreikningurinn er á nafni frændans, Krist Ismailaj, og eru reikningsupplýsingarnar eftirfarandi:
0528-14-405642 kt. 310194-3879

Margt smátt gerir eitt stórt og þeir sem gætu látið eitthvað af hendi rakna – jafnvel lítilræði – eru hvattir til að leggja inn á reikninginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
Fréttir
Í gær

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf