fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fókus

Guðrún skorar á dagskrárstjórn Stöðvar 2

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 16. ágúst 2022 10:00

Mynd/ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún nokkur er mikill aðdáandi tveggja þáttaraða sem Stöð 2 hefur sýnt á undanförnum árum. Reyndar er Guðrún svo mikið fyrir þessar tvær þáttaraðir að hún ákvað að senda aðsenda grein í Morgunblaðið til að freista þess að fá fleiri þætti.

Þáttaraðirnar sem um ræðir eru Allir geta dansað og Ísskápastríð. „Ég und­ir­rituð skora á dag­skrár­stjórn Stöðvar 2 að gera fleiri þátt­araðir af Ísskápa­stríði, þeim frá­bæru þátt­um, og líka All­ir geta dansað,“ segir Guðrún í pistlinum sem um ræðir en pistillinn bæði hefst og lýkur með þessari einu setningu. Guðrún er nefnilega ekkert að flækja hlutina þegar kemur að uppáhalds þáttunum hennar og kemur sér bara beint að efninu.

Síðasta þáttaröð af Allir geta dansað kom út árið 2020 og því hefur Guðrún beðið í um 2 ár eftir nýjum dansþáttum. Sem betur fer fyrir Guðrúnu er búið að framleiða nýja þáttaröð af Ísskápastríð á hverju ári síðan það kom fyrst út árið 2016. Guðrún getur því horft á þá þætti nokkuð langt aftur í tímann á meðan hún bíður eftir næstu þáttaröð.

Nú krossar Guðrún eflaust fingur og vonar að Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Stöðvar 2, lesi pistilinn og taki hann til greina á næsta fundi um dagskrá Stöðvar 2.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Manstu þegar maður gat klárað Facebook? þú áttir bara 3 Facebook metra ólesna“

„Manstu þegar maður gat klárað Facebook? þú áttir bara 3 Facebook metra ólesna“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svelti sig í mörg ár í vinsælum sjónvarpsþáttum

Svelti sig í mörg ár í vinsælum sjónvarpsþáttum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hryllingsmyndagoðsögn með krabbamein – „Engar áhyggjur, ég er harður tíkarsonur“

Hryllingsmyndagoðsögn með krabbamein – „Engar áhyggjur, ég er harður tíkarsonur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu