fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 5. júní 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marquinhos, fyrirliði Paris Saint-Germain, hefur greint frá því að Gabriel, miðvörður Arsenal, hafi sent sér skilaboð eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar hann þakkaði honum fyrir stuðninginn eftir að hafa klikkað á lokaspyrnu vítaspyrnukeppninnar.

Marquinhos hljóp strax til Gabriel eftir að hann skaut yfir markið í vítakeppninni gegn PSG, sem tryggði jafnframt sigur franska liðsins, og hughreysti samlanda sinn og liðsfélaga í landsliðinu.

„Daginn eftir sendi hann mér skilaboð og þakkaði mér fyrir stuðninginn, faðmlagið og orðin,“ sagði Marquinhos á blaðamannafundi með brasilíska landsliðinu.

Marquinhos sagði jafnframt að þetta augnablik hafi verið stærsti sigur sinn þetta kvöld.

„Ég sagði honum að halda höfðinu hátt. Hann hefði átt frábært tímabil og væri að mínu mati besti miðvörður heims á þessari leiktíð,“ sagði Marquinhos enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Í gær

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar