fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 10:30

Vladimir Pútín er ekki í friðarhugleiðingum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladímír Pútín hefur ekki í hyggju að gefa neitt eftir hvað varðar rússnesk yfirráð og áhrif í Austur-Evrópu og Kákasus. Hann hefur í hótunum gegn Armeníu vegna daðurs landsins um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu.

Þetta daður fellur einræðisherranum ekki vel. Á fréttamannafundi, sem fór fram nýlega, sagði hann að það sé rökrétt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og spyrja armensku þjóðina og sjá hver niðurstaðan verður. Bild og Kyiv Independent skýra frá þessu og segja að síðan hafi Pútín komið með aðvörun:

„Á þeim grundvelli munum við svo taka okkar eigin ákvörðun.“

Og þetta var ekki síðasta hótun Pútíns því eftir að hann mildaði aðeins orðaval sitt og talaði um „blíða, fágaða og hagstæðan aðskilnað fyrir báða aðila“ kom romsan um líkindin með Úkraínu:

„Við sjáum öll hvað gerist í málefnum Úkraínu. En hvernig byrjaði það? Með tilraunum Úkraínu til að ganga í Evrópusambandið.“

Margir alþjóðlegir fjölmiðlar segja að orð Pútíns megi skilja sem hótun um að Rússar séu reiðubúnir til að beita hervaldi ef Armenía reynir að ganga í Evrópusambandið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heimilishjálp á Kanaríeyjum stal skartgripum af fjölskyldu fyrir vel á aðra milljón króna

Heimilishjálp á Kanaríeyjum stal skartgripum af fjölskyldu fyrir vel á aðra milljón króna