fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

United skoðar að endurfjármagna lán sín – Skulda 58 milljarða

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. júní 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United er farið að skoða möguleika á að endurfjármagna stóran hluta skulda félagsins sem fellur í gjalddaga á næsta ári.

Samkvæmt heimildum er félagið í viðræðum við banka um mögulega lausn vegna skulda upp á 425 milljónir dala, sem samsvarar rúmlega 58 milljörðum íslenskra króna.

Viðræðurnar eru þó enn á frumstigi og hefur United ekki tekið endanlega ákvörðun um hvernig staðið verður að endurfjármögnuninni. Félagið er meðal annars sagt skoða svokallaðan einkafjármögnunarmarkað til að tryggja hagstæðari kjör.

Málið kemur upp á sama tíma og áfram er óvissa um framtíð eignarhalds félagsins. Meðlimir Glazer-fjölskyldunnar, sem hafa verið eigendur Manchester United í tvo áratugi, eru sagðir áfram skoða ýmsa möguleika varðandi fjárhagslega uppbyggingu félagsins.

Skuldastaða United hefur lengi verið mikið umræðuefni meðal stuðningsmanna, sem hafa gagnrýnt Glazer-fjölskylduna fyrir að leggja miklar skuldir á félagið.

Forráðamenn United vonast til að finna lausn sem styrki fjárhagsstöðu félagsins án þess að hafa neikvæð áhrif á starfsemi þess eða möguleika á félagaskiptamarkaðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Í gær

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar