
Chelsea er að íhugað að blanda sér í baráttuna um hinn 18 ára gamla Zadok Yohanna hjá sænska félaginu AIK.
Brighton og Newcastle hafa þegar lagt fram tilboð í nígeríska kantmanninn sem eru sögð vera upp á um 20,5 milljónir punda.
Chelsea hefur hins vegar rætt mögulegt tilboð upp á 21,6 milljónir punda innan sinna raða samkvæmt enskum miðlum.
Yohanna kom aðeins til AIK frá Ikon Allah-akademíunni í Nígeríu síðasta sumar en hefur vakið mikla athygli fyrir hraða sinn og hæfileika, sér í lagi einn á móti einum.
Real Madrid, Borussia Dortmund, RB Leipzig og Rennes hafa einnig fylgst með leikmanninum.
AIK staðfesti um helgina að félagið væri komið í formlegar viðræður um sölu á Yohanna.