fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Cardi B birti óvart nektarmynd – Aðdáendur deila brjóstamyndum henni til stuðnings

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 14. október 2020 11:02

Cardi B. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cardi B birti óvart nektarmynd í Instagram Story og eyddi henni eins fljótt og hún gat. En því miður sáu nokkrir fylgjendur hennar myndina og fljótlega fór hún á dreifingu um alnetið.

Rapparinn áttaði sig strax á mistökum sínum eftir að hún birti óvart myndina og slökkti á símanum sínum í von um að stöðva birtingu myndarinnar. Hins vegar gekk það ekki.  „Allir og mamma þeirra sáu risastóru spægipylsu geirvörturnar mínar,“ sagði Cardi í hljóðupptöku sem hún deildi á Twitter.

Aðdáendur sýna henni stuðning og deila brjóstamyndum undir myllumerkinu #BoobsOutForCardi á Twitter.

Cardi útskýrði hvernig þetta gerðist. Hún var að halda upp á afmælið sitt sama dag og ætlaði að senda fyrrverandi eiginmanni sínum myndina. Cardi B sótti um skilnað frá Offset, eiginmanni sínum, í september en þau virðast enn vera að tala saman.

„En veistu hvað, ég ætla ekki að vera miður mín yfir þessu. Ég ætla bara að borða morgunmat og fara síðan í partý. Ég ætla ekki að hugsa um þetta, ég ætla ekki að gera það. Fokk it, þetta er ekki einu sinni fyrsta skipti sem þetta gerist. Ég var strippari, þannig skiptir ekki,“ sagði hún.

Cardi B svaraði einnig netverjum sem ákváðu að spyrja mjög óviðeigandi um stærð geirvarta hennar.

„Ég gaf barninu mínu brjóst í þrjá mánuði, brjóstin mín stækkuðu og geirvörturnar stækkuðu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur
Fókus
Fyrir 1 viku

Celebrating George Michael kemur til Íslands

Celebrating George Michael kemur til Íslands