fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Eyjan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 06:00

Johannes Høsflot Klæbo frá Noregi fagnar gullverðlaunum sínum í sprettkeppni skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum 2026. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vetrarólympíuleikum lauk fyrir skemmstu. Norðmenn standa uppi sem sigurvegarar með flesta verðlaunapeninga. Óslitin sigurganga er sérlega holl fyrir þjóðarsál, viðskiptahagsmuni og ímynd landsins. Ungir sem aldnir fyllast þjóðarstolti þegar ljóshærðir og bláeygir Norsarar koma fyrstir í mark. Sautjándi maí á hverjum degi með fána og þjóðbúningi. Norðmenn eru mikil afreksþjóð í íþróttum sem þarf ekki stöðugt að miða árangur sinn við höfðatölu. Auk þessara skíðamanna eiga þeir besta skákmann og knattspyrnumann heims.

Íslendingar eru náskyldir Norðmönnum samkvæmt Landnámu enda flúðu margir þeirra til Íslands undan ofríki og sameiningarhugmyndum Haraldar hárfagra. Árangur Íslendinga á leikunum er þó í engu samræmi við afrek Norðmanna. Langbesti árangur Íslendings var 25. sætið í einhverri skíðakeppni.

Rannsóknir sýna að fyrst og fremst kvíðnir og ístöðulitlir strákar illa haldnir af ADHD og þvermóðsku fóru til Íslands í landnáminu. Skattsvikarar og fjárglæframenn flúðu reyndar líka undan efnahagsbrotadeild Haraldar norður um höf. Þessir menn rændu sér konum á Írlandi sem voru margar á einhverfu rófi með athyglisbrest. Þær veittu því enga eftirtekt að floti víkingaskipa væri kominn að landi. Þetta lið hafði ekki rænu á pakka skíðum í farangurinn. Íslendingasögur fjalla um innbyrðis deilur þessa fólks, ótrúlega móðgunargirni, hégómleika, hvatvísi og flumbrugang.

Afburðamenn í íþróttum urðu eftir í Noregi enda vissu þeir um olíuna sem átti eftir að breyta hagsæld Norðmanna á tuttugustu öldinni. Þeir sáu heldur ekki fram á neinn frama í snjólitlu Íslandi þar sem fólki finnst skemmtilegra að trylla á vélsleðum og upphækkuðum jeppum en ganga á gönguskíðum. Enginn afburðaskíðamaður flutti því Íslands og eignaðist mikinn fjölda af litlum afreksmönnum í íþróttum.

Þess í stað skara Íslendingar fram úr öðrum þjóðum í neyslu ADHD-lyfja og kvíðalyfja og bílaeign. Þeir eru líka heimsmeistarar í þrætubókarlist. Greinilega vantar meira af genum norskra íþróttakappa inn í íslenskt samfélag. Okkur ber að semja við norska sæðisbanka um gjafasæði í stað þess að eiga viðskipti við Dani sem hafa aldrei unnið til neinna afreka á vetrarólympíuleikum. Það er eina leiðin til að breyta dapurri sögu Íslendinga í vetraríþróttum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Thomas Möller skrifar: Með eða á móti ESB – hver hefur rétt fyrir sér?

Thomas Möller skrifar: Með eða á móti ESB – hver hefur rétt fyrir sér?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum
Jón Gnarr skrifar: Frelsi