fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Nína Richter skrifar: Íslendingurinn og auto-exotisminn

Eyjan
Föstudaginn 3. apríl 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki alltaf skítaveður á Íslandi. Að minnsta kosti ekki fyrsta apríl í Borgarfirði. Kannski er það eitthvað gabb. Það er sól inni á milli en fokið á fjallstindunum svífur upp í himinblámann eins og í málverki.

Maðurinn minn er við stýrið en gefur sér samt tíma til að líta upp úr akstrinum.

Hvað heitir aftur þetta fjall, sem er eins og Matterhorn Íslands?
Það er rétt hjá honum. Þetta þríhyrningslaga fjall er eins og okkar eigin útgáfa af risanum í svissnesku ölpunum, – eða ítölsku. Fer eftir því hvern þú talar við.

Ég veit ekki hvað fjallið heitir. Í staðinn sæki ég heimilisbrandarann, tek amerískasta hreiminn sem ég kann, með „vocal fry“ og tilheyrandi: Oh my gaaad Bob, it’s so pu-rrdy.

Spurningin um Matterhorn er túristaspurning. Við heimsækjum okkar eigið land með linsu hins erlenda ferðamanns og reiðum okkur á sömu upplýsingaveitur og þær sem eru sniðnar að alþjóðlegum markaði. Með öðrum orðum: Ég, Íslendingurinn, fletti ekki upp nafninu á fjallinu. Mér rennur ekki blóðið til skyldunnar og ég upplifi mig ekki tengdari fósturjörðinni en svo. Ég þekki fjallið ef bændurnir á svæðinu hafa ákveðið að markaðssetja hérna útsýnisstað fyrir erlenda ferðamenn.

Þegar ég var lítil sat ég í bíl með pabba mínum milli landshluta, sem ruddi út úr sér spurningaflóði. „Hvað heitir þetta fjall?“

Ég hafði varla fyrir því að líta upp úr Andrési önd til að umla að ég vissi það ekki. En í einhverjum tilfellum vissi ég það, eitthvað af þessu síaðist inn. „Grábrók,“ af því að mér fannst það fyndið. Eða „Herðubreið,“ af því að hún var fjalladrottningin og ég var svo mikill rómantíker.

Á ákveðnu tímabili skall fjölgun ferðamanna á miðborginni eins og alda. Svo virtist sem hátternisreglum væri hent út um gluggann og oftar en ekki lentum við fjölskyldan grunlaus á ljósmynd hjá bandarískum ferðamönnum sem fannst við vera „so authentic“ úti í labbitúr. Ég var einhvern tímann spurð hvort að þetta væri alvöru augnliturinn minn, og uppnumin kona kallaði á manninn sinn að koma og „sjá.“

Manninum mínum, ekki jafn meðvirkum, fannst þetta aldeilis ekki gaman og hann elti uppi þessa sömu ferðamenn og galaði á þá: „This is not Disney-land, delete this!“ á meðan ég horfði ofan í jörðina og beit í vörina.

Ég er fyrir löngu orðin þátttakandi í sviðsetningu á Íslandi sem mér fannst asnaleg fyrir tuttugu árum síðan en ég er fyrir löngu orðin samdauna. Þetta fyrirbæri heitir auto-exotismi. Þegar við förum að gangast upp í staðalímynd af okkur sjálfum. Þegar ferðamenn spyrja mig til vegar finn ég fyrir þessu.

„Trúir þú á álfa?“ Spyrja þau ískrandi af spenningi yfir að hafa snarað alvöru Íslending, eins og Kjartan galdrakarl með strump í búri.

„Yes, and their leader is Aurora, the lady of the Northern lights,“ svara ég og horfi kryptísk með ljósbláu augunum mínum út á hafið þar sem forfeður mínir víkingarnir liggja eftir bálfarir. Þau þegja og þora ekki að hlæja en munu segja þessa sögu seinna í matarboði og það er nákvæmlega það sem þau borguðu fyrir.

Fjallið heitir Skessuhorn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Jón Gnarr skrifar: Dalalíf

Jón Gnarr skrifar: Dalalíf
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Jón Gnarr skrifar: Frelsi

Jón Gnarr skrifar: Frelsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Framtíðin var í gær

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Framtíðin var í gær
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?