fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Björn Jón skrifar: Í borg þarf bílastæði

Eyjan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 15:00

Einvaldskonungurinn Friðrik VI í túlkun málarans Christoffer Wilhelm Eckersberg. Snemma árs 1835 spurðist út að konungur hygðist skerða prentfrelsi enn frekar. Í kjölfarið sendu 572 málsmetandi borgarar konungi bænaskjal sem hann svaraði með þeim orðum að „enginn nema vér einir“ værum þess umkomnir að meta hvað væri þjóðfélaginu raunverulega til farsældar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigendur fasteigna við Suðurlandsbraut sem og rekstraraðilar við götuna áttu fund með frambjóðendum Samfylkingarinnar til borgarstjórnar síðastliðinn miðvikudag þar sem til umræðu var fyrirhuguð þrenging götunnar. Til stendur að fækka akgreinum í eina í hvora átt og fjarlægja um 450 bílastæði, eða um 40% stæða við götuna. Hagsmunaaðilum var að vonum heitt í hamsi og samkvæmt frétt Morgunblaðsins spurði einn þeirra frambjóðendur hvort þeir gerðu sér grein fyrir að við götuna ynnu 2.400 manns sem samsvaraði starfsmannafjölda fimm álvera og tekjur umræddra fyrirtækja næmu 166 milljörðum króna.

Fulltrúar Samfylkingarinnar á fundinum voru Pétur Marteinsson, oddviti framboðslistans, og þau Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Stein Olav Romslo sem skipa þriðja og fimmta sæti listans. Öllu meiri bragur hefði verið á því að senda borgarstjórann sjálfan á fundinn, sem skipar raunar annað sæti listans, sem og Skúla Helgasonar, borgarfulltrúa til fjölda ára, sem er í fjórða sæti. Þeir bera ábyrgð á fyrirhugaðri þrengingu götunnar sem verið hefur í undirbúningi í meira en áratug. Þess í stað var nýju fulltrúunum att á foraðið og eðlilega fátt um svör.

Gunnar Jónsson, lögmaður á Mörkinni lögmannstofu, viðraði helstu áhyggjur rekstraraðila á fundinum. Gatan yrði í reynd nánast lokuð þau ár sem framkvæmdir stæðu yfir en sá tími væri áætlaður allt að fimm ár. Allt atvinnulíf við götuna yrði lamað á meðan sem hefði í för með sér málaferli og fullyrti hann að borgin yrði dæmd bótaskyld, hvort tveggja á grundvelli almennra skaðabótareglna sem og á grundvelli skipulagslaga.

Íslendingar hraktir úr miðbænum

Ég veit sem er að áhyggjur Gunnars og annarra rekstraraðila eru réttmætar. Sjálfur starfaði ég lengi í verslun í miðbænum og sinnti verkefnum fyrir félag miðbæjarkaupmanna um árabil. Þar varð ég oft vitni að því er fyrirtæki lögðu upp laupana því framkvæmdir drógust úr hömlu. En ekki tók betra við að loknum framkvæmdum því venjulega hafði bílastæðum verið fækkað verulega — og án þess að nokkur ný kæmu í staðinn. Allt þetta: fækkun bílastæða, þrenging og lokun gatna, síhækkandi bílastæðagjöld, framkvæmdir sem drógust úr hömlu og skertar strætisvagnasamgöngur í miðbænum gerði það að verkum að allri verslun og þjónustu hnignaði hratt. Við vöruðum ítrekað við því hvaða afleiðingar þetta hefði en allt kom fyrir ekki — ekki var hlustað á neinar mótbárur þeirra sem besta þekkingu höfðu á umhverfinu og rekið höfðu fyrirtæki í miðbænum um áratugaskeið. Nú á hið sama að ganga fyrir Suðurlandsbrautina.

Eina ljósið í myrkrinu var stóraukinn ferðamannastraumur til landsins sem glæddi gamla bæinn lífi. En Íslendingar hafa lítið sem ekkert þangað lengur að sækja nema vínveitingahús um helgar. Því má raunar velta því upp hversu áhugaverður áfangastaður miðbærinn er í reynd fyrir erlenda ferðamenn. Þar hitta þeir varla nokkra landsmenn, áletranir eru jafnan ekki á íslensku heldur misgóðri ensku og alls kyns sóðaskapur látinn viðgangast, til að mynda að þriðja flokks popptónlist sé látin óma í hátölurum utan við miskræsileg öldurhús.

Viðskiptavinurinn hefur rétt fyrir sér

Verslun og þjónusta fær ekki þrifist nema aðgengi sé greitt. Á dögunum varð talsvert fjaðrafok vegna þess að Ari Edwald, oddviti framboðslista Miðflokksins til borgarstjórnar, benti á hvernig komið hefði verið fyrir vegatálmum í þeim fáu bílastæðum sem eftir eru í miðbænum. Mótbárurnar við þessu eru jafnan þær að viðskiptavinir geti bara lagt í bílastæðahúsunum. Nú vill svo til að þau eru ekki alltaf í næsta nágrenni verslana, margir eiga erfitt með gang og meira að segja er það svo að fjöldi fólks treystir sér ekki í bílastæðahús borgarinnar. Útigangsfólk heldur þar gjarnan til, þau eru oft sóðaleg og stigagangar anga af stækri hlandlykt.

Verslunarmenn reyna ekki að hafa vit fyrir viðskiptavininum — hann veit betur. (Nokkuð sem kandidatar til borgarstjórnar mættu hafa í huga gagnvart kjósendum.) Viðskiptavinurinn vill helst geta lagt bifreið sinni sem næst búðinni enda eru það langverðmætustu bílastæðin fyrir verslunarreksturinn. Allur þorri fólks fer um borgina á sínum bíl. Bílnum var ekki þröngvað upp á okkur: Íslendingar kusu sjálfir að eignast bíla þegar velmegun óx á síðari hluta tuttugustu aldar. Byggðin hér er dreifð um stórt svæði og það er þjónustan líka. Þessu verður ekki breytt að neinu marki hvað sem líður áformum um borgarlínu. Þrenging Suðurlandsbrautar mun hafa þær afleiðingar að þjónustan dreifist enn frekar — fer suður í Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð. Áform borgaryfirvalda um fækkun bifreiða eru dæmd til að snúast upp í andhverfu sína.

„Vi alene vide“

Þann tíma sem ég starfaði að hagsmunagæslu fyrir rekstraraðila í miðbænum fannst mér hryggilegast hversu litlu valdhafanir skeyttu um staðreyndir máls. Ekki var hlýtt á raddir þeirra sem mesta höfðu reynsluna og engu skipti hversu vandlega ígrundaðar röksemdir við lögðum fram, hversu rækilegar greinargerðir voru unnar á grundvelli besta fáanlegu gagna, talnaefnis og erlendra skýrslna um miðbæjarmál — við vorum vart virtir viðlits af hinum háu herrum í Ráðhúsinu.

Hroki ráðamanna í þessu efni hefur valdið mér heilabrotum: þetta var stundum eins og ætla að rökræða við ofsatrúarmann um tilvist almættisins. „Vi alene vide“ var svarið rétt eins og hjá Friðriki konungi VI þegar málsmetandi borgarar ömuðust við enn frekari skerðingu prentfrelsis árið 1835. Fólkið sem stendur vaktina í fyrirtækjum sínum á betra skilið. Það greiðir skatta og skyldur til samfélagsins, veitir öðrum góða atvinnu og glæðir borgina lífi. Hverfi verslunin og þjónustan á braut verður borgin fátækari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
Eyjan
Fyrir 1 viku

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið