fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Eyjan

Er Brynjar á leið í borgarmálin?

Eyjan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 15:39

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins sem var til skamms tíma settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur verið, undanfarnar vikur, orðaður við sæti á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. Hafa þær sögusagnir nú fengið byr undir báða vængi eftir að Brynjar dró umsókn sín um nýja setningu í dómaraembætti til baka.

Fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu að það þann 5. desember 2025 hafi það auglýst laust til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar skipun í embætti dómara sem muni hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs dómara standi.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur, samkvæmt tilkynningunni, skilað umsögnum sínum til dómsmálaráðherra. Í tilkynningunni segir að það sé niðurstaða dómnefndar að Sindri M. Stephensen sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Þá sé það niðurstaða dómnefndar að Brynjar Níelsson sé hæfastur umsækjenda til að hljóta setningu í embætti héraðsdómara.

Í lok tilkynningarinnar er hins vegar tekið fram að eftir að umsögn dómnefndar barst dómsmálaráðherra hafi Brynjar Níelsson dregið umsókn sína til baka.

Hvort þetta þýði að Brynjar stefni á sæti í borgarstjórn á væntanlega eftir að skýrast innan tíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stórkaup eða stórsala á landsréttindum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stórkaup eða stórsala á landsréttindum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk