

„Ég sem kjörinn fulltrúi sæti jafnvel óbeinu ámæli og er mætt með fyrirlitningu í ríkisfjölmiðlinum RÚV fyrir það að ég skuli dirfast að spyrja spurninga og veita stjórnvöldum aðhald í þessu máli. Það er alveg ljóst að staðan er alvarleg. Í nágrannalöndum okkar er talað af fullri alvöru um hættuna. Það mun ég líka gera og aldrei láta þagga niður í mér,“
segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í Morgunblaðsgrein í dag. Hún komst í fréttirnar á dögunum fyrir að leggja til Egilshöll sem stað fyrir sóttkví íslendinga á leið heim frá Tenerife, í viðleitni sinni til að stemma stigu við frekari útbreiðslu COVID-19.
Sú hugmynd var fljótlega skotin í kaf af sérfræðingum þar sem slíkt gæti einmitt haft þveröfug áhrif, og smitað fleiri en ella.
Inga ræddi síðan málið í Kastljósinu þar sem spyrillinn þjarmaði að Ingu fyrir að tala óvarlega um hluti sem hún hefði takmarkað vit á, en Inga sagðist sjálf ekkert vit hafa á veirunni, enda væri hún fordæmalaus og hún gæti ekki þóst vita en aðrir.
Inga setur fram tölfræði sem hún telur til marks um alvarleika veirunnar:
„Nú hafa um 90 þúsund manns fengið veikina. Þar af eru rúmlega þrjú þúsund dáin. Það eru ríflega þrjú prósent þeirra sem hafa fengið sjúkdóminn. Átján prósent þeirra sem glíma við sjúkdóminn sem stendur eru skilgreind sem alvarlega veik. Dánarhlutfallið er enn alvarlegra ef litið er til þess hve margir annaðhvort ná bata eða deyja. Tæpum 47 þúsundum er batnað, þrjú þúsund dáin. Það eru sex prósent. Ef tölurnar eru réttar þá eru þetta staðreyndirnar sem við horfumst í augu við. Hér á landi hafa dyrnar fyrir smit inn í landið staðið galopnar. Áherslan lögð á að byrgja brunninn eftir að við værum dottin ofan í hann. Sex hafa þegar greinst með veiruna og um 260 eru í sóttkví.“
Inga segir dánartíðni veirunnar mun hærri en venjulegrar flensu og ekki megi tala niður hættuna af COVID-19:
„Gagnvart slíkri vá þjónar engum tilgangi að tala niður hættuna sem af henni stafar. Við verðum að nálgast vandann af yfirvegun og raunsæi. Fólk fer ekki varlega nema það viti hvað er í húfi. Nú ætti þetta kannski ekki að vera svo alvarlegt mál að sumra mati sem segja að þetta sé nú bara eins og hver önnur flensa. Dánartíðnin segir þó allt annað. Samt gerir jafnvel menntaður og hingað til almennt virtur læknir lítið úr því sem nú stendur fyrir dyrum og getur þróast í stórslys.“
Þess má hinsvegar geta að venjulega flensan (influenza) sem Inga talar um, hefur sýkt yfir 32 milljónir manna hvar um 18 þúsund hafa látist og 310 þúsund manns þurft að leita á sjúkrahús, bara í Bandaríkjunum einum á þessu ári. Það er talsvert meira en COVID-19 hefur gert fram til þessa. Sjá nánar hér.
Sjá einnig:
Gunnar Smári segir Einar hafa enga sómakennd og Eiríkur tekur undir
Ólafur kemur Einari til varnar og baunar á Gunnar Smára og Ingu Sæland