fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 14:30

Mo Salah í stuði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paul Scholes hefur gagnrýnt Mohamed Salah harðlega eftir nýleg ummæli egypska framherjans um Liverpool og knattspyrnustjórann Arne Slot.

Salah vakti mikla athygli þegar hann skrifaði á samfélagsmiðilinn X að Liverpool þyrfti að snúa aftur í „heavy metal football“, hugtak sem margir tengja við sóknarsinnaðan og hraðan fótbolta Jurgen Klopp. Ummælin voru túlkuð sem gagnrýni á núverandi stjóra félagsins, Arne Slot.

Scholes ræddi málið í hlaðvarpinu The Good The Bad & The Football ásamt Nicky Butt og sagði að Sir Alex Ferguson hefði aldrei liðið slíka hegðun.

„Ferguson hefði sparkað honum öfugt út,“ sagði Scholes í gríni en bætti við að Salah hefði líklega aldrei leyft sér að tjá sig svona undir stjórn Skotans. Salah á að spila sinn siðasta leik fyrir Liverpool um helgina en margir velta því fyrir sér hvernig Slot bregst við.

Fyrrum miðjumaður Manchester United sagði einnig að stórstjörnur reyndu oft að beina athyglinni frá eigin frammistöðu þegar illa gengi.

„Salah hefur átt slakt tímabil og svona leikmenn kenna öllum öðrum um nema sjálfum sér,“ sagði Scholes.

Nicky Butt tók í svipaðan streng og taldi að Salah væri að reyna að setja pressu á Slot. Gary Neville gagnrýndi einnig framferði Egyptans og sagði að hann yrði brjálaður ef Manchester United leikmaður myndi haga sér með þessum hætti opinberlega.

Salah hefur aðeins skorað sjö mörk á tímabilinu sem er hans lakasta markatímabil síðan hann kom til Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Klopp mjög óhress með gærkvöldið

Klopp mjög óhress með gærkvöldið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Minningarsteinn afhjúpaður til heiðurs Sigursteini Gíslasyni í kvöld

Minningarsteinn afhjúpaður til heiðurs Sigursteini Gíslasyni í kvöld
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United í leit að markverði

United í leit að markverði
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði
433Sport
Í gær

Fá 2,3 milljarða fyrir hlaðvarp í kringum HM – Taka upp í glæsilegri íbúð í New York

Fá 2,3 milljarða fyrir hlaðvarp í kringum HM – Taka upp í glæsilegri íbúð í New York
433Sport
Í gær

Real Madrid staðfestir ráðningu Mourinho – Bernardo Silva að ganga í raðir þeirra

Real Madrid staðfestir ráðningu Mourinho – Bernardo Silva að ganga í raðir þeirra