fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Dómarar játa mistök – Gáfu United mark sem átti að dæma af

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómaramálastjórn enska knattspyrnusambandsins, PGMOL, hefur viðurkennt að annað mark Manchester United í 3-2 sigri gegn Nottingham Forest hefði átt að vera dæmt af.

Mikil umræða skapaðist eftir leikinn þegar mark Mateus Cunha var látið standa þrátt fyrir að sjónvarpsupptökur sýndu greinilega að Bryan Mbeumo snerti boltann með hendinni í aðdragandanum.

VAR-teymið skoðaði atvikið í um þrjár mínútur áður en dómaranum Michael Salisbury var bent á að skoða atvikið sjálfur á skjánum við hlið vallarins. Salisbury ákvað þó að standa við upphaflega dóm sinn og markið var dæmt gilt.

Nú hefur PGMOL haft samband við Nottingham Forest og viðurkennt að markið hefði átt að vera dæmt af vegna hendi Mbeumo. Mark Cunha kom aðeins tveimur mínútum eftir að Morato hafði jafnað metin fyrir Forest eftir snögga forystu Luke Shaw fyrir Manchester United.

Fyrrum leikmaður United, Gary Neville, gagnrýndi einnig dóminn harðlega í beinni útsendingu á Sky Sports. „Þetta er augljós hendi í uppbyggingunni. Boltinn fer af handleggnum og hann virðist nánast grípa hann,“ sagði Neville.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Klopp mjög óhress með gærkvöldið

Klopp mjög óhress með gærkvöldið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn