

Samkvæmt niðurstöðunum svara sífellt fleiri ferðamenn sem sækja landið heim því til að Íslandsferðin hafi ekki verið peningana virði.
„Árið 2022 var hlutfall þeirra ferðamanna um 11% en í fyrra var hlutfallið komið í rúmlega 18%. Augljóst er að auknar álögur í boði stjórnvalda hafa sett strik í reikninginn og nú ætla þau sér að þyngja róður íslenskrar ferðaþjónustu enn frekar, ofan á allt það sem orðið hefur og alla þá óvissu sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir,“ segir hún í aðsendri grein á Vísi.
Diljá segir að ef tengja megi niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna við landsmálin og skattagleði ríkisstjórnarinnar sé ljóst að landsmenn séu meira en langþreyttir á framgöngu ríkisstjórnarflokkanna sem leggi verðmætasköpun landsins síendurtekið að veði.
„Nærtækast væri fyrir stjórnvöld að hverfa nú af villtum vegi aukinna álaga, læra af reynslunni og hlúa að atvinnulífinu. Því er verr og miður, að öllum líkindum aðeins óskhyggjan ein.“
Diljá vektur athygli á því að fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031 sé komin til fjárlaganefndar sem mun taka hana fyrir á næstu dögum.
„Það er ekki hægt annað en að hvetja meirihluta nefndarinnar sérstaklega til að opna augun fyrir þeim neikvæðu áhrifum sem fyrirhuguð áform varðandi ferðaþjónustu geta hæglega haft í för með sér. Ótækt er að ekki hafi verið gerð tilraun til að leggja mat á þau áhrif sem áformin munu óumflýjanlega hafa á hegðun fólks og fyrirtækja. Áhrifin af innleiðingu innviðagjaldsins á farþega skemmtiferðaskipa ættu aftur á móti að segja þingmönnum nefndarinnar allt sem segja þarf,“ segir hún.
Diljá segir að hækkun virðisaukaskattshlutfallsins á aðgang að baðlónum og aukin gjaldtaka á ferðamannastöðum höggvi í sama knérunn.
„Velflest baðlón landsins eru staðsett á landsbyggðinni og þeir ferðamannastaðir sem munu verða fyrir barðinu á aukinni gjaldtöku sömuleiðis. Hér verður að staldra við og vanda til verka, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar er undir,“ segir Diljá.
Hún bætir við að lokum að það yrði engum til bóta fari svo að enn fleiri ferðamenn telji Íslandsferðina ekki peningana virði.
„Ábyrgð meirihluta fjárlaganefndar er mikil og boltinn er hjá honum, ekki skora sjálfsmark.“