fbpx
Sunnudagur 04.maí 2025
Fréttir

Heiðar um tolla Trumps – „Þetta er afskaplega skammsýnt“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 3. apríl 2025 11:30

Heiðar Guðjónsson. Mynd: Hringbraut

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, tjáði sig um víðtækar tollahækkanir Bandaríkjastjórnar sem forsetinn Donald Trump tilkynnti um í gærkvöld, á Bylgjunni.

Sjá einnig: Trump tilkynnir um tolla á innflutning – „Dagur frelsunar“

Heiðari finnst aðgerðir Bandaríkjamanna lýsa skammsýni.

„Þetta er miklu verra heldur en menn voru að óttast. Það sem er sérstakt í þessu er að þarna eru Bandaríkjamenn að leggja 10% toll á allt þó að önnur lönd séu með núll prósent tolla á þau. Kalla það gagnkvæmni. Þannig að það er bara lágmarkstollur inn í Bandaríkin sem er 10%. Þó svo að við séum ekki með neina sérstaka tolla til þeirra munum við samt falla undir 10%,“ sagði Heiðar.

„Hann ímyndar sér að hann sé að vernda innlenda framleiðslu með því að gera erlenda framleiðslu dýrari. Það sem við erum að kaupa frá Bandaríkjunum, sem er mikið tæknibúnaður og bílar og annað, við erum ekkert að framleiða það hér. En við færum þá frekar að kaupa evrópska bíla og annað sem væri án tolla.“

Engir tollar verða lagðir á framleiðslu sem á sér stað innan Bandaríkjanna. Markmiðið er að fá fyrirtæki til að flytja starfsemi sína til Bandaríkjanna. Heiðar bendir á að þetta taki langan tíma:

„Að fá leyfi til að byggja verksmiðju og síðan byggja verksmiðjuna og síðan fínstilla hana og svo loksins að fara að framleiða bíla, það tekur meira en þrjú ár. Og hann á bara eftir rétt um þrjú ár af sínu tímabili.“

Neikvætt á allan hátt

„Margt til í þessu hjá honum, að það má alveg jafna leikinn, en núna hefur þetta neikvæð áhrif á heimshagkerfið og dregur úr viðskiptum. Dregur úr framleiðni hagkerfisins. Við verðum fátækari fyrir vikið en það er ekki eins og það sé að koma kreppa. En það verður minni hagvöxtur.“

Heiðar var spurður hvort þessar tollahækkanir hafi eitthvað gott í för með sér fyrir Bandaríkin.

„Nei, þetta er afskaplega skammsýnt. Þetta er svolítið eins og að pissa í skóinn sinn. Þetta lagar ekkert vandamálið og eins og ég nefndi áðan, þetta er ekki að fara að endurvekja iðnað í Bandaríkjunum af því að það tekur lengri tíma. Það þorir enginn að fjárfesta svona stórum fjárhæðum þegar hann veit að líftími fjárfestingarinnar er hugsanlega bara þrjú ár. Það finnst mér vera svona misskilningurinn í þessu hjá þeim, að ætla sér að gera þetta með þessum hætti.“

Bendir Heiðar á að það taki mörg ár að byggja flóknar, sérhæfðar verksmiðjur, t.d. fyrir framleiðslu íhluta í snjallsíma sem núna eru flestir framleiddir í Asíu.

Heiðar segir að tollar hafi aldrei virkað vel fyrir lífskjör almennings. Frjáls verslun hafi hins vegar í sögulegu samhengi stuðlað að bættum lífskjörum almennings.

Hlusta má á viðtalið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins
Fréttir
Í gær

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu