
Dularfullir drónar herja nú á New Jersey í Bandaríkjunum. Engin svör hafa borist um hvaðan þessir drónar koma, hvers vegna þeim er flogið á þessu svæði og í hvaða tilgangi. Tilkynningar um drónana fóru að berast um miðjan nóvember.
Drónarnir hafa meðal annars sést á flugi í grennd við verksmiðjur Bandaríkjahers og yfir golfvelli Donalds Trump í Bedminster. Alríkislögreglan (FBI) hefur biðlað til almennings um að senda inn allar myndir og myndskeið af drónunum.
Íbúar í New Jersey eru farnir að ókyrrast. Embættismenn á svæðinu krefjast þess nú að heimavarnarráð Bandaríkjanna taki málið föstum höndum. Til dæmis með því að lýsa yfir afmörkuðu neyðarstigi svo hægt sé að skjóta drónana niður.
Þingmaður repúblikanaflokksins í New Jersey, Jeff Van Drew, sagðist hafa heimildir fyrir því að drónarnir kæmu frá írönsku móðurskipi. Pentagon hefur þó neitað þeirri kenningu og tekið fram að ekkert móðurskip frá Íran sé búið að koma sér fyrir við strendur Bandaríkjanna. Það sé mat Pentagon að drónarnir tengist hvorki andstæðingum Bandaríkjanna né erlendri þjóð.
Drónarnir eru sagðir risastórir og háþróaðir. Meðal annars geta þeir flogið með ljósin slökkt og vikið sér undan þyrlum og skönnum. Ríkisstjórinn Phil Murphy segir íbúum að drónarnir séu ekki ógn við öryggi almennings.
Time lapse video of the New Jersey drones the other night pic.twitter.com/SaoSUdo9i5
— Jayroo (@jayroo69) December 11, 2024
Áhugaleysi Pentagon, alríkislögreglunnar og heimavarnarráðsins fer nú verulega fyrir brjóstið á embættis- og þingmönnum New Jersey. Mörgum þykja viðbrögðin benda til þess að drónarnir gætu verið á vegum hins opinbera og þá sé ámælisvert að því sé haldið leyndu og íbúum haldið í myrkrinu.
Blaðamaður New York Post varð sjálfur vitni að flugi dróna á dögunum og lýsir því hvernig hlutur á stærð við bifreið af gerðinni Honda Fit hafi flogið yfir hann með blikkandi ljós í átt að hergagnaverskmiðjunni Picatinny Arsenal. Marga grunar að drónarnir komi í raun þaðan og herinn sé þar með fullkomlega meðvitaður um uppruna þeirra en haldi því leyndu.
Einn háttsettur starfsmaður lögreglunnar í New Jersey sagði við The Post: „Við erum öll ráðvillt um hvað í fjandanum er í gangi. Það virðist sem enginn hafi neinar áhyggjur af þessu. Ég hef aldrei á mínum ferli upplifað annað eins þar sem enginn getur svarað því hvað er að gerast.“
How are dozens of SUV-sized drones flying over New Jersey on a nightly basis and nobody in our government knows where they’re coming from or what they’re doing?
FBI, Congress, local officials – all baffled.
And no one is even talking about it?
WHAT?!pic.twitter.com/7ldNDqF94Y
— The Kevin Harlan Effect (@KevHarlanEffect) December 11, 2024
Sveitarstjórnarfulltrúinn Dawn Fantasia skrifar um málið á samfélagsmiðilinn X: „Við vitum ekkert. PUNKTUR. Að halda því fram að það sé engin þekkt eða sannfærandi ógn er mjög misvísandi.“
Fundur var haldinn með ráðamönnum New Jersey og fulltrúum heimavarnarráðsins í gær. Fundurinn fór fram fyrir luktum dyrum en þeir sem sátu fundinn segja að heimavarnarráðið hafi ekki gefið nein skýr svör og málið virðist þakið leynd.
Þingmaðurinn Doug Steinhardt mætti á fundinn og leið óþægilega með það sem þarf fór fram. „Þeir virðast ætla að þrjóskast við. Það er engin ógn – en á sama tíma geta þau ekki fundið drónana og vaktað þá. Við heyrum frá heimavarnarráðinu að það búi ekki yfir tækninni til að greina þá, vakta þá eða afvirkja þá. Þegar fólk segir að það sé engin sannfærandi ógn á ferðinni þá held ég að það hafi bara ekki hugmynd um hvort það sé satt. Það er áhyggjuefni.“
Ef einhver veit eitthvað þá er ekki verið að segja okkur frá því,“ segir Steinhardt sem segist vona að ef drónarnir eru á vegum hersins þá verði embættismenn í það minnsta upplýstir um stöðuna.
Það kemur líklega fáum lesendum á óvart að samsæriskenningar eru farnar á flug um málið. Þar er því haldið fram að drónarnir séu hvorki bandarískir né erlendir. Þeir séu utan úr geimnum.
New Jersey’s UAP over the city last week. This isn’t a drone it’s something else. Don’t know about the rest of the UAPs but this one isn’t what they think it is.
pic.twitter.com/t5805PIf8X— Michael’s Opinion (@Michael10414637) December 11, 2024
This is not a drone. We have a full blown UFO / UAP event occurring in real time in New Jersey with tens of thousands of witnesses and tons of video footage. pic.twitter.com/jPRy6pT6Rl
— DivXMaN (@crypto_div) December 11, 2024