fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Selenskíj varpar ljósi á það hversu margir úkraínskir hermenn hafa fallið í stríðinu

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. desember 2024 10:47

Volodymyr Zelenskyy. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Volodymír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur opnað sig um mannfall úkraínska hersins í stríðinu við Rússland sem nú hefur staðið yfir í tæp þrjú ár.

Selenskíj segir að frá því að Rússar réðust inn í landið í febrúar 2022 hafi 43 þúsund úkraínskir hermenn fallið og 370 þúsund slasast.

Selenskíj greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum X. Sumir þeirra 370 þúsund sem hafa slasast hafa snúið aftur á vígvöllinn á meðan aðrir hafa hlotið alvarlegri meiðsli og þurft frá að hverfa.

Tölur um mannfall rússneska hersins hafa verið á reki en Selenskíj segir að samkvæmt upplýsingum Úkraínumanna hafi Rússar misst 198 þúsund hermenn í Úkraínu og 550 þúsund slasast.

Segir Úkraínuforseti að frá því í byrjun september hafi Rússar misst fimm til sex hermenn fyrir hvern hermann sem Úkraínumenn missa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“
Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“