fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Sóley segir orðatiltækið „svolítið OCD“ grafa undan skilningi á þráhyggju og áráttu

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 13. ágúst 2024 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stundum lætur fólk þau orð falla að það sé „svolítið OCD“ og á þá við að það vilji hafa allt í röð og reglu eða séu miklir snyrtipinnar. Þótt því beri að fagna að fólk gangi vel um og þyki það hið eðlilegasta mál að vera með þráhyggju og áráttu (OCD), geta slík ummæli grafið undan skilningi á vandanum. Þráhyggja og árátta telst nefnilega til tíu mest hamlandi kvilla sem hrjáð geta manninn og heldur fólki í heljargreipum svo árum eða áratugum skiptir,“ 

segir Sóley Dröfn Davíðsdóttir  yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina í grein sinni á Vísi.

Sóley Dröfn Davíðsdóttir

Sóley segir einkennin sem teljast til þráhyggju og áráttu tvíþætt.

„Annars vegar fær fólk áleitnar og óboðnar hugsanir, hugsýnir eða hvatir um hið versta sem það getur ímyndað sér, eins og það að misnota barn, hrinda einhverjum fyrir bíl eða valda eldsvoða. Hins vegar leiðist fólk út í áráttur sem koma eiga í veg fyrir það versta eða draga úr þjáningunni sem þráhyggjan skapar. Áráttur geta átt sér stað í huganum, eins og þegar talið er í hljóði eða óþægilegar hugsanir jafnaðar út. Þær gera einnig verið sýnilegar, endurteknar athafnir eins og það að þvo sér í sífellu um hendurnar eða margyfirfara læsingar.

Til að fólk teljist vera með þráhyggju og áráttu þarf vandinn að taka upp að minnsta kosti klukkustund dag, valda vanlíðan eða skerða lífsgæði.“ 

70% fólks í þessum hópi þróar með sér aðrar geðraskanir

Sóley bendir á að um 70% fólks í þessum hópi þróar með sér aðrar geðraskanir og fer þunglyndi þar fremst í flokki. 

„Skiljanlega dregur vandinn úr fólki, enda má vel ímynda sér að það sé lýjandi að eyða fleiri tímum á dag í það sem aðrir telja óþarft. Eins og það að margyfirfara heimilissorpið til að tryggja að engin verðmæti hafi slæðst í ruslið eða að sótthreinsa allt sem fer inn fyrir hússins dyr. Stundum fer fjölskyldan að taka þátt í áráttum til að létta undir með þeim sem um ræðir. Flestir hafa reynt að brjótast úr viðjum þráhyggjunnar á einhverjum tímapunkti en ekki haft erindi sem erfiði.“

Sóley segir að góðu fréttirnar eru þær að til eru öflug meðferðarúrræði við þráhyggju og áráttu. „Öflugasta úrræðið er hugræn atferlismeðferð en þar er unnið markvisst að því að uppræta vítahringinn sem myndast hefur. Þá meðferð má bæði fá í formi einstaklings- og hópmeðferðar og er lítill munur á árangrinum. Meðferðartímar geta verið með ýmsu sniði; þeir geta staðið yfir í klukkutíma eða lengur og átt sér stað vikulega eða með styttra millibili. Hérlendis má líka fá svokallaða „fjögurra daga meðferð“ sem líkja má við OCD-vinnubúðir. Sú meðferð fer fram í litlum hópum þar sem hver og einn vinnur lungað úr deginum með sínum sálfræðingi milli þess sem hann hittir hópinn og fær fregnir af afrekum hans. Að þessum dögum loknum eru um 70% þátttakenda lausir úr greipum þráhyggjunnar og 90% betri en áður var. Árangurinn virðist haldast í einhver ár hið minnsta, ef marka má eftirfylgdarrannsóknir sem gerðar hafa verið,“ segir Sóley sem segir heilmikla von um bata og er um að gera að leita sér aðstoðar og segja starfinu hjá OCD hf lausu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna