fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Aumingja Svíar

Eyjan
Laugardaginn 21. október 2023 06:00

Óttar Guðmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir sænskir fótboltaáhugamenn voru nýlega skotnir til bana í Belgíu. Heittrúaður múslimi skaut þá vegna þess að þeir voru klæddir blágulum landsliðstreyjum. Ástæðan er sögð sú að Svíþjóð sé fjandsamlegt múslímum. Því til sönnunar eru birtar myndir af mönnum í Málmey sem brenna Kóraninn á almannafæri í skjóli tjáningarfrelsisins.

Svíar hafa þó verið duglegastir allra að taka við flóttafólki frá Afríku og Miðausturlöndum og Afganistan sem flúið hefur skoðanakúgun og harðstjórn í heimalandinu. Illa hefur gengið að aðlaga þetta fólk sænsku samfélagi. Miklar og dýrar aðgerðir stjórnvalda til að kenna því sænsku og ná áttum í nýju landi hafa að hluta mistekist. Innflytjendur hafa einangrast í sérstökum hverfum og ekki  orðið hluti af sænsku samfélagi. Þetta hefur leitt til glæpa og gengjamyndunar í hverfum innflytjenda. Hver kynslóðin á fætur annarri hefur valið að vera utanveltu og stunda skipulagða glæpastarfsemi.

Svíþjóð nútímans einkennist af tortryggni og öryggisleysi þar sem skotárásir og sprengingar og óeirðir eru daglegt brauð. Mikið af þessum flóttamönnum skildu aldrei við heimalandið heldur fluttu með sér fjölskyldudeilur, trúarofstæki og ofbeldi.

Ég starfaði lengi sem læknir meðal innflytjenda í Svíþjóð og upplifði þessa sjálfvöldu aðskilnaðarstefnu sem einkennir samfélög innflytjenda. Gestrisni Svía hefur snúist upp í andhverfu sína og sænskir þegnar eru taldir réttdræpir. Þessu vanþakklæti heimsins segir sr. Hallgrímur reyndar frá á Passíusálmum sínum:

Jesús þeim sýndi í sannri raun
sálarheill, náð og frelsi.
Guðs syni Júðar guldu í laun
grimmd, hatur og fangelsi.

Furða það, sál mín, engin er,
ei skalt því dæmi týna,
þó veröldin launi vondu þér
velgjörð mjög litla þína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Misheppnuð tilraun snýst um prinsipp

Þorsteinn Pálsson skrifar: Misheppnuð tilraun snýst um prinsipp
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna
EyjanFastir pennar
15.04.2024

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
EyjanFastir pennar
06.04.2024

Sigmundur Ernir skrifar: Tuttugasta öldin, taka tvö

Sigmundur Ernir skrifar: Tuttugasta öldin, taka tvö
EyjanFastir pennar
06.04.2024

Óttar Guðmundsson skrifar: Veröld sem var

Óttar Guðmundsson skrifar: Veröld sem var
EyjanFastir pennar
28.03.2024

Þorsteinn Pálsson skrifar: Fjörutíu og tvö prósent

Þorsteinn Pálsson skrifar: Fjörutíu og tvö prósent
EyjanFastir pennar
24.03.2024

Björn Jón skrifar: Verðleikar og andverðleikar 

Björn Jón skrifar: Verðleikar og andverðleikar