fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Laun áhrifavaldaparsins drógust saman

Fókus
Föstudaginn 18. ágúst 2023 14:59

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spennandi tímar eru fram undan hjá áhrifavaldaparinu Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni og Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur. Þau trúlofuðu sig nýverið og sagði Kristján Einar, kallaður Kleini, skilið við samfélagsmiðla næsta hálfa árið – jafnvel lengur – svo hann gæti einbeitt sér að markmiðum sínum.

„Samfélagsmiðlar taka frá mér 2-3 klukkustundir á dag, það eru klukkustundir sem ég gæti verið að nýta í að vinna í átt að draumnum. Og það er það sem ég ætla að gera!“ sagði hann um pásuna og bætti við að hann væri staðráðinn í að láta drauma sína rætast.

Sjá einnig: Tekjur áhrifavalda 2022: Birgitta Líf og Gummi Kíró á toppnum

Kristján Einar Sigurbjörnsson

Var tekjuhæstur 2021

Mikill munur var á tekjum Kristjáns milli ára, enda sat hann inni í fangelsi á Spáni meirihluta árs 2022. Hann var tekjuhæsti áhrifavaldurinn árið 2021, en hann hafði ekki aðeins tekjur að hafa úr samfélagsmiðlum heldur mokveiddi hann einnig fisk sem sjómaður.

Hann var með 1.445.602 kr. í tekjur á mánuði árið 2021 en 161.669 kr. í fyrra.

Í júní stofnaði hann einkahlutafélagið Kristján Einar ehf. og kemur fram í skráningu félagsins að tilgangur þess sé að „útleiga innréttaðra sendla (campera), kaup og sala á skyldum vörum, rekstur fasteigna og lánastarfsemi.“

Sjá einnig: Kleini hefur tekið stóra ákvörðun

Hafdís Björg Kristjánsdóttir
Mynd: Anna María Írisardóttir

Hafdís Björg Kristjánsdóttir

Hafdís Björg er eigandi líkamsmeðferðastofunnar Virago og einkaþjálfari. Hún er einnig vinsæl á Instagram með yfir 17 þúsund fylgjendur.

Í október í fyrra var hún dæmd til að greiða tíu milljónir króna auk dráttarvaxta vegna kaupa á fyrirtækinu Trimmform Berglindar.

Hafdís var með 223.241 kr. í mánaðarlaun að meðaltali í fyrra miðað við greitt útsvar 2022.

Sjá einnig: Þetta eru LXS-dívurnar með í laun – Mikill munur milli vinkvenna

Um er að ræða útsvar hvers og eins og eru mánaðarlaun reiknuð út frá því. Upphæðirnar þurfa því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi og til að mynda er sleppt skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Gögnin eru opinber fyrir fjölmiðla hjá Skattinum þessa dagana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár