fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
EyjanFastir pennar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst

Eyjan
Sunnudaginn 7. júní 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlahöfundur hefur staðið í þeirri bjargföstu trú að 29. ágúst næstkomandi verði kosið um það hvort íslenska þjóðin vilji hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún hefur kosið að halda sig við þá skoðun að þjóðaratkvæðagreiðslan snúist einmitt um það, enda veit hún mætavel hvað mun standa á kjörseðlinum. Hún verður þó að viðurkenna að stundum hefur hún orðið ringluð og hugsað með sér hvort það geti verið að hún sé að misskilja eitthvað.

Hún fylgist með þjóðfélagsumræðunni og það hefur ekki farið fram hjá henni hversu margir tala eins og landsmenn séu þann 29. ágúst að fara að kjósa um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Meðal þeirra sem tala á þennan veg eru þrautþjálfaðir stjórnmálamenn, núverandi og fyrrverandi, sem tilheyra flokkum sem nú eru í stjórnarandstöðu.

Auk „the usual suspects“ í stjórnarandstöðunni sem haga málflutningi sínum á þennan einkennilega hátt má til dæmis nefna ráðherrana fyrrverandi Björn Bjarnason og Guðna Ágústsson sem draga ekkert af sér í hræðsluáróðri. Rétt er einnig að nefna Hjört J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðing, en hann er maðurinn sem einhverjir kalla Íslandsmeistara í andstöðu við Evópusambandið. Hann mun hafa skrifað rúmlega sextíu greinar á fimm mánuðum þar sem hann varar ákaft við sambandinu.

Óttinn við aðild Íslands að Evrópusambandinu skín í gegnum skrif þessara manna, stjórnarandstöðunnar og ótal félaga þeirra. Þessi hópur má ekki til þess hugsa ógrátandi að þjóðin fái að kjósa um viðræður, sem jafngilda engan veginn aðild.

Það er erfitt að taka mark á þessum einstaklingum í því mikla tilfinningauppnámi sem þjakar þá svo mjög og mun einungis færast í aukana á næstu vikum og mánuðum. Þeim er örugglega meinilla við að þeim sé bent á að taka Dag B. Eggertsson sér til fyrirmyndar í málflutningi sínum. Sá góði þingmaður Samfylkingarinnar er ætíð yfirvegaður og málefnalegur í umræðum og skrifum um Evrópusambandið. Hann veit greinilega um hvað hann er að tala en það sama er varla hægt að segja um ansi marga andstæðinga Evrópusambandsins hér á landi, sem tala og skrifa af svo áberandi heift að illmögulegt er að taka mark á þeim.

Vanstillingin í málflutningi fjölmargra þeirra sem hræðast já-ið getur tekið á sig stórfurðulegar myndir. Guðni Ágústsson lét hafa eftir sér: „Við viljum verja fullveldið og Ísland og fjallkonuna okkar. Og segjum nei. Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni.“

Guðni er greinilega tilfinningaríkur maður, en með orðum sínum er hann ekki að gera sjálfum sér greiða. Menn sem tala á þennan hátt þurfa greinilega að róa sig, sennilega í langan tíma, áður en þeir geta náð áttum á ný.

Þeir sem berjast fyrir nei-inu 29. ágúst ættu að geta komið þeirri skoðun sinni á framfæri án tryllingslegs hávaða og hræðsluáróðurs og líka án þess að bulla. Það er fullkominn óþarfi að tala og skrifa eins og þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst jafngildi því að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu segi þjóðin já.

Ef þjóðin segir nei þá nær málið ekki lengra. Ef þjóðin segir já þá getur þessi hópur tekið upp þá iðju að æpa og skrækja um hætturnar sem bíða okkar verði af aðild. Það er alltof snemmt núna og er farið að þreyta marga landsmenn sem hrista höfuðið yfir þessum taugaveiklislega hávaða og hætta að hlusta vegna þess að þeir vilja fá frið.

Eigi að miða við hávaða og læti þá má vel segja að andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu hafi yfirhöndina í umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Þetta er að stórum hluta fólk sem er furðulega æst og nánast tryllt af hræðslu við að þjóðin kunni að setja X við já-ið. Já-i sem byggist á því að kanna hvað sé í boði og hvort til verði samningur sem feli í sér betri lífskjör fyrir landsmenn. Það hljóta að teljast fréttir til næsta bæjar ef andstæðingar inngöngu Íslands í Evrópusambandið eru á móti betri lífskjörum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Krónukvíðinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Krónukvíðinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Heimkomusorgin

Nína Richter skrifar: Heimkomusorgin
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn