fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Kane sendir skýr skilaboð til Tottenham og Bayern

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 8. ágúst 2023 14:31

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúar á vegum Harry Kane hafa látið Bayern Munchen og Tottenham vita að ákvörðun þurfi að vera tekin varðandi framtíð leikmannsins í þessari viku.

Tilboði Bayern upp á meira en 100 milljónir evra var hafnað af Tottenham á dögunum. Hingað til hefur ekki verið talið að þýska félagið sé til í að bjóða meira í leikmanninn. Daniel Levy og æðstu menn Tottenham eru harðir í horn að taka þrátt fyrir að Kane eigi aðeins ár eftir af samningi sínum.

Bayern taldi tilboð sitt ansi gott og sanngjarnt en það dugði ekki til.

Kane hefur nú látið vita að hann muni ekki skipta um lið eftir að enska úrvalsdeildin hefst um helgina, en Tottenham mætir Brentford á sunnudag.

Kane hefur verið stórkostlegur fyrir Tottenham í áraraðir og skoraði til að mynda 30 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Perez endurkjörinn og Mourinho ráðinn

Perez endurkjörinn og Mourinho ráðinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Leikmann hafi verið með Frey í liði fyrir brottreksturinn

Leikmann hafi verið með Frey í liði fyrir brottreksturinn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Eriksen hneig aftur niður í miðjum leik – Fékk sting í hjartað og féll niður

Sjáðu myndbandið: Eriksen hneig aftur niður í miðjum leik – Fékk sting í hjartað og féll niður
433Sport
Í gær

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
433Sport
Í gær

Segir vel mögulegt að hann fari frá Liverpool – Tjáir sig einnig um framtíð tveggja liðsfélaga

Segir vel mögulegt að hann fari frá Liverpool – Tjáir sig einnig um framtíð tveggja liðsfélaga
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?