
Federico Chiesa viðurkennir að hann gæti yfirgefið Liverpool í sumar fái hann ekki stærra hlutverk undir stjórn Andoni Iraola.
Í viðtali við Gazzetta dello Sport sagði ítalski kantmaðurinn að hann vilji spila reglulega og muni meta stöðuna eftir undirbúningstímabilið í Bandaríkjunum.
„Ef ég fæ ekki nægan spilatíma í ensku úrvalsdeildinni þarf ég að finna hann annars staðar,“ sagði Chiesa.
Chiesa byrjaði aðeins einn leik í deildinni á síðustu leiktíð og var orðaður við endurkomu til Ítalíu í janúar.
Hann sagði þó Liverpool hafa neitað að leyfa sér að fara á þeim tíma vegna meiðsla og manneklu.
Chiesa ræddi einnig framtíð Curtis Jones og sagði miðjumanninn hafa spurt sig út í lífið á Ítalíu eftir áhuga Inter á honum.
„Ég sagði honum að það væri frábært þar og veðrið betra en í Liverpool,“ sagði Chiesa.
Þá sagðist hann telja líklegt að Alisson Becker yrði áfram hjá Liverpool þrátt fyrir orðróm um Juventus.