
Víkingur tilkynnti um eins árs framlengingu á samningi Ingvars Jónssonar í dag, samhliða því að Ögmundur Kristinsson var kynntur til leiks hjá félaginu.
Ingvar glímir við krabbamein. Félagið styður hann heilshugar í þeirri baráttu og því til marks var samningur hans sem fyrr segir framlengdur. Víkingurinn Tómas Þór Þórðarson hrósar sínu félagi í hástert fyrir þetta.
„Um leið og vert er að bjóða Ögmund Kristinsson velkominn í Víkina er mér ljúft og skylt að vekja athygli á því að mínir menn hafa framlengt samninginn við Ingvar Jónsson út næsta ár til að halda áfram að styðja hann í sinni baráttu. Maður er að sjálfsögðu stoltur að tilheyra svona félagi,“ skrifar Tómas á Facebook.
Knattspyrnusamfélagið hér á landi hefur lagst á eitt í samstöðu með Ingvari og hans fjölskyldu.
„Það hefur einnig verið æðislegt að sjá samhuginn í íslensku fótboltafjölskyldunni og vil ég nýta tækifærið til að þakka og hrósa öllum þeim félögum sem hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar með styrkjum til fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum. Áfram Ingvar,“ skrifar Tómas enn fremur.