fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Fyrirsæta yfirgaf stórstjörnuna – Brást sem eiginmaður, faðir og manneskja

433
Mánudaginn 8. júní 2026 08:30

Sarah Kohan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Javier Hernandez hefur í opinskáu viðtali rifjað upp erfiðan tíma í einkalífi sínu sem átti stóran þátt í niðursveiflu á síðari hluta ferilsins.

Hernandez, betur þekktur sem Chicharito, varð gríðarlega vinsæll hjá Manchester United eftir komuna frá Guadalajara árið 2010 og vann meðal annars tvo Englandsmeistaratitla með liðinu .

Sóknarmaðurinn viðurkenndi þó síðar að hann hefði átt erfitt utan vallar eftir skilnaðinn við fyrirsætuna Sarah Kohan árið 2021.

„Ég brást sem eiginmaður, faðir og manneskja. Ég var ekki sá pabbi sem ég vildi vera,“ sagði Hernandez.

Hann greindi einnig frá því að hann hefði glímt við þunglyndi á þessum tíma, sérstaklega eftir andlát afa síns Tomas Balcazar.

„Ég missti áhugann á öllu. Ég grét einn á æfingum á meðan Covid stóð yfir,“ sagði Mexíkóinn.

Hernandez sagði að hann hefði jafnvel hugleitt að hætta í fótbolta á þessum tíma.

Ferill hans dalaði á síðustu árum með stoppum hjá LA Galaxy og Guadalajara, en hann var síðar gagnrýndur harðlega í heimalandinu fyrir ummæli um konur á samfélagsmiðlum.

Forseti Mexíkó, Claudia Sheinbaum, sagði meðal annars að Hernandez ætti margt ólært þegar kæmi að jafnréttismálum.

Chicharito baðst síðar afsökunar á ummælunum og sagði þau aldrei hafa átt að særa eða niðurlægja fólk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir upp störfum mjög óvænt – Alvarlegar ásakanir munu koma fram á næstu dögum

Segir upp störfum mjög óvænt – Alvarlegar ásakanir munu koma fram á næstu dögum
433Sport
Í gær

Stórstjarna opnar sig um þunglyndi – „Vissi ekki við hvern ég ætti að tala og byrgði allt inni“

Stórstjarna opnar sig um þunglyndi – „Vissi ekki við hvern ég ætti að tala og byrgði allt inni“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Dýrmætur sigur gegn Úkraínu

Dýrmætur sigur gegn Úkraínu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Forsetinn með stórar fullyrðingar í gær um tilboð sem hann hyggst leggja fram – Blaðamaður heldur því fram að þetta sé leikmaðurinn

Forsetinn með stórar fullyrðingar í gær um tilboð sem hann hyggst leggja fram – Blaðamaður heldur því fram að þetta sé leikmaðurinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda