

Sögusagnir um möguleg félagaskipti Julián Álvarez til Real Madrid halda áfram að færast í aukana, þó enginn vilji staðfesta neitt opinberlega enn sem komið er.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að þegar hann spurði Real Madrid út í málið hafi svarið einfaldlega verið „engin athugasemd“. Sama svar fékk hann frá fólki í kringum argentínska framherjann.
Álvarez hefur verið orðaður við Real Madrid undanfarna daga og spænskir fjölmiðlar halda því fram að félagið gæti verið tilbúið að bjóða allt að 150 milljónir evra í leikmanninn.
Barcelona bauð í hann um daginn en Atletico hafnaði því tilboði. Florentino Perez sem var endurkjörinn forseti Real Madrid um helgina vill kaupa stórstjörnu í sumar.
Argentínski landsliðsmaðurinn gekk til liðs við Atlético Madrid frá Manchester City og hefur fest sig í sessi sem einn hættulegasti sóknarmaður Evrópu. Hann er aðeins 26 ára gamall og hefur bæði reynslu af stórum titlum og alþjóðlegum mótum.