
Arsenal ku vera komið langt í viðræðum um kaup á táningnum Jeremy Monga frá Leicester.
Monga er aðeins 16 ára gamall og þykir eitt mesta efni enska fótboltans um þessar mundir.
Kantmaðurinn vill samkvæmt fréttum frekar ganga til liðs við Arsenal en önnur félög, til að mynda Manchester United. Er útlit fyrir að hann verði fyrstu kaup Englandsmeistaranna í sumar.

Arsenal hefur fylgst lengi með þróun leikmannsins og gæti hann kostað meira en tíu milljónir punda.
Monga lék 27 leiki fyrir Leicester á síðustu leiktíð og varð yngsti markaskorari í sögu ensku B-deildarinnar þegar hann skoraði gegn Preston.
Leicester féll úr ensku B-deildinni í vor og spilar í C-deildinni á næstu leiktíð.