
Christian Eriksen er við fína heilsu þrátt fyrir að hafa hnigið niður í vináttuleik Danmerkur gegn Úkraínu í gær.
Leikurinn, sem fram fór í Odense, var stöðvaður á 65. mínútu eftir atvikið en Eriksen komst síðar til meðvitundar og gekk sjálfur af velli og upp í sjúkrabíl. Leikurinn var þó flautaður af.
Morten Boesen, landsliðslæknir Dana, sagði að Eriksen væri í góðum gír og líklega yrði hann útskrifaður af sjúkrahúsi fljótlega.
„Ég ræddi við Christian í morgun. Honum líður vel og hann er hjá fjölskyldunni,“ sagði Boesen.
Eriksen fékk ígræddan bjargráð eftir hjartastopp sitt á EM árið 2021 í leik gegn Finnlandi.
Tækið gerði honum kleift að hefja ferilinn á ný með Brentford árið 2022 áður en hann fór til Manchester United.
Ekki er vitað hvert framhaldið á knattspyrnuferli Eriksen verður.