
Það vakti athygli síðasta sumar þegar stuðningsmenn Vals buðu upp á borða með skilaboðum til Víkings um að enginn skilaréttur væri á Gylfa Þór Sigurðssyni, sem skipti úr Val í Víking fyrir umrætt tímabil.
Borðinn átti ekki eftir að eldast vel. Gylfi sló í gegn með Víkingi í fyrra og varð Íslandsmeistari með liðinu. Svöruðu Víkingar með öðrum borða nú á dögunum.
„Ég spái lítið í því. Ég fór í besta lið á Íslandi þannig ég var mjög ánægður,“ sagði Gylfi aðspurður um málið í viðtali við Fótbolta.net í Bandaríkjunum, þar sem hann er nú með landsliðinu í aðdraganda leiks við Argentínu.
Víkingur er á toppi deildarinnar og þykir liðið mjög líklegt til að verja titil sinn.
„Bæði KR og Fram eru að spila vel og eru búnir að standa sig frábærlega á þessu móti, þannig að þetta verður erfitt en hvað varðar skiptin hjá mér þá er ég bara meira en ánægður að hafa skipt,“ sagði Gylfi enn fremur.