

Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp vikuna í Íþróttavikunni á 433.is.
Freyr Alexandersson var látinn fara sem þjálfari Brann í Noregi á dögunum.
„Þetta kemur manni bæði á óvart og ekki. Þetta tímabil hefur farið mjög brösuglega af stað en hann kom liðinu í bikarúrslit og á frábært síðasta tímabil, í Evrópu og kom liðinu aftur í Evrópu,“ sagði Helgi áður en Hörður tók við.
„Manni fannst þetta þróast í þessa átt, umræðan í kringum þetta, í svona 2 vikur fyrir uppsögnina.
Sem Íslendingur og aðdáandi Freys hefði maður viljað sjá hann fá meiri tíma og leikmenn voru víst með honum í liði,“ sagði hann, en voru þeir sammála um að Freyr ætti fullt erindi í annað stórt starf í Skandinavíu eða annars staðar.
Þátturinn er í spilaranum.