

Sveinn Andri Sveinsson og Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir gengu í hjónaband um helgina, samkvæmt umfjöllun Smartlands fór athöfnin fram í Dómkirkjunni þar sem séra Sveinn Valgeirsson gaf þau saman. Veislan fór svo fram í Sjálfsstæðissalnum við Arnarvöll.
Lögmennirnir tveir byrjuðu saman í fyrra og leið ekki á löngu þar til þau voru farin að búa saman, hafa þau nú keypt sér íbúð í miðbænum.
Sveinn Andri og Vigdís eru þekkt andlit úr íslensku þjóðmálalífi. Hún var framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og Sveinn Andri hefur verið viðloðandi margvísleg mál sem hafa komið til kasta dómstóla.