
Wolves hefur staðfest að tíu leikmenn séu á förum frá félaginu eftir fallið úr ensku úrvalsdeildinni.
Liðið endaði á botni deildarinnar með aðeins 20 stig og leikur því í B-deildinni á næstu leiktíð.
Matt Doherty er á meðal þeirra sem fara. Hann hjálpaði Wolves upp í úrvalsdeildina árið 2018 og síðan í Evrópukeppni ári síðar.
Írinn skoraði 33 mörk og lagði upp 41 í 389 leikjum fyrir félagið og má flokkast sem goðsögn. Fór hann síðar til Tottenham en svo aftur til Úlfanna.
Angel Gomes er einnig á förum eftir lánsdvöl frá Marseille, en hann snýr aftur til franska félagsins.
Auk þeirra yfirgefa Dexter Lembikisa, Ty Barnett, Harvey Griffiths, Arthur Nasta, Bjorn Marwa, David Osifo, Fabian Salmon og Jake Wilcox félagið.