
Alex Scott, miðjumaður Bournemouth, segir stuðningsmenn Liverpool mega búast við skemmtilegri fótbolta á ný undir stjórn Andoni Iraola.
Scott lék undir stjórn Iraola hjá Bournemouth og segir leikstíl Spánverjans minna mikið á fyrstu ár Jurgen Klopp hjá Liverpool.
„Pressan án bolta er mjög aggressív, svipað og hjá fyrstu Klopp-liðunum hjá Liverpool. Stuðningsmenn Liverpool ættu klárlega að vera spenntir,“ segir Scott.
Scott segir Iraola einnig hafa átt stóran þátt í eigin framförum síðustu misseri.
„Hann hefur gert gríðarlega mikið fyrir mig persónulega. Ég hef bætt mig mikið bæði með og án bolta.“
Stuðningsmenn Liverpool voru margir hverjir orðnir verulega pirraðir á leikstílnum undir stjórn Arne Slot, sem var rekinn á dögunum.