
Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp vikuna í Íþróttavikunni á 433.is.
Sara Björk Gunnarsdóttir er komin heim í Hauka og er maður hennar Árni Vilhjálmsson er því orðaður við íslensk lið, aðallega sitt fyrrum félag Breiðablik og KR.
„Hann og Óskar náðu vel saman í Smáranum. Þeir eru bara með Eið Gauta sem hreinræktaða níu.
KR er væntanlega að byggja upp í það að verða Íslandsmeistari í ár eða á næsta ári og þá þarf að vera samkeppni um allar stöður,“ sagði Hörður um málið.
Þátturinn er í spilaranum.