fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Segist hafa einfaldað frásögnina til að „hlífa sjálfri mér og þeim sem sýndu mér vanvirðingu“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 12. apríl 2023 06:47

Edda Falak. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttukonan og hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak rauf þögnina í gærkvöldi í færslu á Instagram og sagði að hún hafi mátt þola linnulaust áreiti og persónuárásir fyrir að hafa veitt brotaþolum vettvang til að segja sögur sínar undanfarin ár.

Sjá einnig: Edda Falak rýfur þögnina – Nauðsynlegt að staldra við eftir „linnulaust áreiti og árásir“

Edda birti svipaða en lengri færslu á Facebook þar sem hún ræddi um fjármálalífið í Kaupmannahöfn og útskýrði hvað hún hafi verið að hugsa þegar hún laug um starfsferill sinn í viðtölum.

„Áður var ég við nám í Copenhagen Business School þar sem ég var í tengslum við fjármálafyrirtæki, bæði á meðan að á námi mínu stóð og eftir nám. Ég kynntist fjármálalífinu í gegnum viðburði, verkefni og námið mitt. Í viðtölum sem ég veitti eftir heimkomuna reyndi ég að varpa ljósi á menningu og viðhorf sem ég mætti þar. Hugsun mín í þeim viðtölum var að einfalda frásögnina í þeirri viðleitni að hlífa sjálfri mér og þeim sem sýndu mér vanvirðingu. Ég er breysk eins og annað fólk. Ég hef beðist velvirðingar á því,“ segir hún og heldur áfram:

„Það sem ég veit fyrir víst er hvaða viðhorfum ég mætti þarna úti, sem og hér heima. Ég og allar hinar. Ég mun halda áfram að segja okkar sögur. Alveg sama hvaða gröftur vellur upp. Því kvenfyrirlitning og kerfisbundið ofbeldi gegn konum á ekki að viðgangast í heilbrigðu samfélagi.“

Edda segist ætla að taka smá tíma til að hlúa að sjálfri sér.

„Eftir allt sem á undan er gengið er nauðsynlegt fyrir mig að staldra við og hlúa að sjálfri mér. Ég ætla að nýta tímann til þess að hvíla mig og ákveða næstu skref. Árásir á mína persónu munu ekki stoppa mig né aðra sem standa í sömu baráttu fyrir réttlátu samfélagi. Samtakamáttur okkar er ofbeldinu yfirsterkara og við munum ekki leggjast niður og láta ofbeldið yfir okkur ganga.

Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa sýnt mér stuðning og staðið með mér, þið eruð ómetanleg. Það stendur engin ein undir svona og ég gæti þetta ekki án ykkar.“

Pistilinn í heild sinni má lesa hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“