fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Fréttir

Skattsvikarinn Eiríkur biður gamalmenni um þrjátíu þúsund krónur – „Þetta er bara val, fólk velur þetta“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 14. desember 2021 07:37

Eiríkur Sigurbjörnsson sjónvarpsstjóri á Omega. mynd/Teitur Jónasson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal þeirra sem hafa fengið 30.000 króna rukkun frá sjónvarpsstöðinni Omega er fólk á tíræðisaldri. Þessi rukkun bætist við hefðbundna greiðsluseðla frá sjónvarpsstöðinni. Eirikur Sigurbjörnsson, sem var nýlega dæmdur fyrir skattsvik, segir að alltof fáir greiði greiðsluseðlana.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. „Það eru flestir sem hafa bara beðið um þetta. Ég tek þátt í þessu sjálfur persónulega því mér finnst ég þurfa að taka þátt í þessu,“ er haft eftir Eiríki um þessa óvenjulega háu greiðsluseðla sem hafa verið sendir í heimabanka fólks. Hann sagði að um sérstakt afmælisátak sé að ræða í tilefni 30 ára afmælis Omega. Það hófst í september og stendur fram á næsta ár. Í átakinu felst að fólk, sem hefur áður styrkt sjónvarpsstöðina, fær sendan aukalegan valgreiðsluseðil upp á 30.000 krónur. Fyrir fær fólk 5.000 króna greiðsluseðil í hverjum mánuði.

Omega líkir þessari aðferð við það sem Rauði krossinn og Hjálparstarf kirkjunnar gera en þar eru upphæðirnar þó miklu lægri. Meðal þeirra sem hafa fengið þessa greiðsluseðla núna er eldra fólk, jafnvel á tíræðisaldri. „Þetta er bara val, fólk velur þetta,“ sagði Eiríkur aðspurður um hvort ekki sé verið að biðja um ansi háa upphæð. Hann sagði að sjónvarpsstöðin hafi engar auglýsingatekjur né ríkisstyrki en starfsemin sé mjög mikilvæg. „Fólk er að frelsast í gegnum starfið, eignast lifandi trú á Jesú Krist og hefur bjargast,“ sagði hann.

Í október var hann dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 110 milljóna í sekt fyrir meiriháttar skattsvik en hann skilaði inn röngum framtölum frá 2011 til 2016. Einnig var hann sakfelldur fyrir að hafa vanrækt að telja fram miklar úttektir fyrir sjálfan sig úr fyrirtæki í rekstri.

„Við erum ekki að plokka peninga af fólki, við viljum ekki gera það. Það er bara einn hnappur, delete, þá er því eytt,“ er haft eftir honum um 30.000 króna rukkunina.

Hann sagði alltof fáa greiða. „Hvernig eigum við að lifa nema að fólk taki þátt í þessu og eigi hlutdeild í þessu?“ Við þurfum að fá miklu meira inn til að reka fjölmiðla. Það er mikill kostnaður, en árangurinn er mikill. Þið megið bara standa með okkur. Hérna eru margir að selja eiturlyf og nauðgarar, við erum bara ljós í myrkri,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Reykholtsmálið: Fólk tengt fjölskylduböndum grunað um fjárkúgun og líkamsárás gegn palestínskum manni – Sendu hann illa farinn úr landi

Reykholtsmálið: Fólk tengt fjölskylduböndum grunað um fjárkúgun og líkamsárás gegn palestínskum manni – Sendu hann illa farinn úr landi
Fréttir
Í gær

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullltrúa Hollands vísað úr Eurovision – Yfirheyrður af lögreglu

Fullltrúa Hollands vísað úr Eurovision – Yfirheyrður af lögreglu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Katrín opnar sig um áfallið: „Afi var enn lifandi og missti báða syni sína á nokkrum mánuðum“

Katrín opnar sig um áfallið: „Afi var enn lifandi og missti báða syni sína á nokkrum mánuðum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“