fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Biden vill fullbólusetja 160 milljónir Bandaríkjamanna fyrir 4. júlí

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 6. maí 2021 08:00

mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það gengur vel að bólusetja Bandaríkjamenn gegn kórónuveirunni en Joe Biden, forseti, vill gera enn betur og á þriðjudaginn kynnti hann nýtt bólusetningamarkmið stjórnvalda. Nú er stefnt að því að 160 milljónir, hið minnsta, hafi lokið bólusetningu fyrir 4. júlí sem er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna.

Um 331 milljón býr í Bandaríkjunum. Nú hafa um 105 milljónir lokið bólusetningu og um 147 milljónir hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni.

Á fréttamannafundi sagði Biden að nú væri nóg til af bóluefnum og nú sé áhersla lögð á að sannfæra enn fleiri um að láta bólusetja sig. Ef það tekst verði stórt skref stigið í átt að eðlilegu lífi á nýjan leik í bandarísku samfélagi.

Hann sagði að enn væru of margir á þrítugs- og fertugsaldri sem telji ekki þörf á að láta bólusetja sig. „Ég vil hafa þetta alveg skýrt. Þið hafið þörf fyrir að láta bólusetja ykkur,“ sagði Biden á fundinum og beindi þar orðum sínum að ungu fólki.

Nú verður einnig breytt um stefnu hvað varðar skiptingu bóluefna á milli ríkjanna 50. Með því á að tryggja að meira berist af bóluefnum til ríkja þar sem þörfin er mest. Fram að þessu hefur þeim verið skipt eftir íbúatölu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir