fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Síðustu bólusetningar fyrir páska í dag

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. mars 2021 09:00

Mynd: Stjórnarráðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag verða um þrjú þúsund manns bólusettir í Laugardalshöll. Þetta er fólk fætt 1940, 1941 og 1942 og fær það seinni skammtinn af bóluefninu frá Pfizer.  Þetta eru síðustu bóluefnaskammtarnir sem til eru en næstu skammtar koma á þriðjudaginn og verður bólusetningum þá haldið áfram með bóluefnum frá Pfizer, AstraZeneca og Moderna.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún sagði að meira bóluefni berist ekki fyrr en eftir páska, á þriðjudag og það sé frá Pfizer, AstraZeneca og Moderna.

Bólusetning við kórónuveirunni er skilgreind sem heilbrigðisþjónusta og er því undanþegin sóttvarnareglugerðum. Ragnheiður sagði að samt sem áður sé reynt til hins ýtrasta að fara eftir öllum reglum og sagðist ekki telja að bólusetning fari úr skorðum vegna hertra takmarkana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti