fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Fréttir

Kópavogsbær segir eftirlit með niðurrifi sem fór úrskeiðis í samræmi við lög en sé til skoðunar – Þakplötur fóru inn um glugga hjá nágranna

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 6. maí 2026 16:00

Þakplötur flugu út um allt í niðurrifinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kópavogsbær segir eftirlit byggingarfulltrúa með niðurrifi Fannborgar 6 í samræmi við lög og að Vinnueftirlitið sé að rannsaka málið. Bárujárnsplötur fuku í allar áttir, meðal annars inn um glugga hjá nágranna í Fannborg 8. Þótti mikil mildi að ekki hlytust meiðsl af.

Atvikið átti sér stað fyrir um mánuði síðan við niðurrif á Fannborg 6, sem á að víkja fyrir nýjum miðbæ Kópavogs. Eins og sagt var í frétt Vísis um málið fengu hjón á níræðisaldri sem búa á þriðju hæð í Fannborg 8 þakplötu inn um gluggann hjá sér. Stórfjölskyldan var í heimsókn og þótti mikil mildi að ekki yrði slys á fólki.

Verktakinn, Mannverk, harmaði atvikið og lofaði að koma í veg fyrir að sams konar kringumstæður sköpuðust aftur.

Íbúar á svæðinu hafa lengi verið ósáttir við framkvæmdirnar og því sem þeir lýsa sem samráðsleysi Kópavogsbæjar. Þetta mál hafi ekki gert neitt til þess að sætta íbúana.

Hver ber ábyrgð?

Hákon Gunnarsson, fulltrúi Samfylkingar í skipulags- og umhverfisráði, spurði um þetta niðurrif, eftirlitið og ábyrgðina. Það er hvort að bærinn myndi beita lögbundnum þvingunum og láta menn sæta viðurlögum.

Sjá einnig:

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

„Þann 6. apríl varð mikill misbrestur á niðurrifi á Fannborg 6. Bárujárnsþakplötur fuku í ofsaveðri og talsverðar skemmdir urðu á Fannborg 8 (Gjábakka). Myndskeið náðist af þakplötum fjúka langt út fyrir varnarvegg kringum húsið. Vegfarendur voru í mikilli slysahættu og mildi var að engin slys urðu á fólki,“ segir Hákon í fyrirspurn sinni þar sem einnig var spurt um fleiri atriði, svo sem varðar upplýsingagjöf til íbúa á svæðinu.

Geti stöðvað framkvæmdir

Í svari sínu segir Guðrún Edda Finnbogadóttir, skrifstofustjóri umhverfissviðs, að eftirlit byggingarfulltrúa með framkvæmdinni hafi verið í samræmi við lög. Einnig að Vinnueftirlitið sé með málið til skoðunar.

Samkvæmt lögum beri framkvæmdaraðilinn ábyrgð á að fyllsta öryggi sé gætt og beri ábyrgð á að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Í lögum segi einnig skýrt að eigandi mannvirkis beri ábyrgð á hönnun, byggingu og rekstur þess.

„Það er því skýrt að ábyrgð á framkvæmdinni er í höndum framkvæmdaraðila/eiganda,“ segir Guðrún Edda. „Ef framkvæmdir er ekki unnar í samræmi við útgefin byggingarleyfi, gildandi lög og reglur og/eða ákvæði uppbyggingarsamkomulag er varðar umgengni á framkvæmdartíma hefur byggingarfulltrúi heimild til þess að stöðva framkvæmdir. Vinnueftirlitið sér hins vegar um eftirlit er varðar öryggi á framkvæmdarsvæði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
Fréttir
Í gær

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Í gær

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Í gær

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Í gær

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir stúlku sem varð fyrir einelti skaut á bíl gerendanna – „Ég held að allir skilji reiði hans“

Faðir stúlku sem varð fyrir einelti skaut á bíl gerendanna – „Ég held að allir skilji reiði hans“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður á hjúkrunarheimili tók debetkort vistmanns og straujaði það 48 sinnum – Fór á spreðerí í Portúgal

Starfsmaður á hjúkrunarheimili tók debetkort vistmanns og straujaði það 48 sinnum – Fór á spreðerí í Portúgal