fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Hanna Kristín segist sæta daglegu áreiti frá Magnúsi: „Er ekki nóg að ég hafi lagt fram kærur um líkamlegt ofbeldi?“

Beiðni um nálgunarbann hafnað þrátt fyrir áverkavottorð

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 24. ágúst 2017 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Núna er ég fangi. Frelsi mitt er lítið sem ekkert. Stöðugur ótti. Mig langar ekkert meira en að einhver taki utan um mig og segi af fullkomnu öryggi „þetta verður allt í lagi,“ skrifar Hanna Kristín Skaftadóttir í pistli á Facebook í gærkvöldi.

Hanna Kristín er konan sem hefur kært Magnús Jónsson fyrrverandi sambýlismann sinn fyrir að beita hana ofbeldi á Four Seasons hótelinu í Austin í Texas í mars síðastliðnum. Hanna Kristín er konan sem hefur áður kært Magnús fyrir ofbeldisbrot. Hanna Kristín er konan sem sótti um nálgunarbann á Magnús, en því var hafnað. Hún er konan sem hringdi í 112 í gærkvöldi og lýsti yfir áhyggjum, hún er konan sem heldur því fram að hún sæti daglegu áreiti af hendi Magnúsar og hún er konan sem spyr hvað þarf að gerast áður en beiðni um nálgunarbann fæst samþykkt.

DV greindi frá 22. maí síðastliðinn þegar Hanna Kristín steig fram og sagði frá ofbeldinu af hálfu Magnúsar og sýndi myndir og áverkavottorð. Forsaga málsins er rakin og í niðurlagi greinarinnar er haft eftir Hönnu Kristínu:

„En fyrir drengina mína ætla ég að vera fyrirmyndin og móðirin sem lætur svona ekki viðgangast og vera aftur sú sterka kona sem ég var. Kona sem lætur ekki svona viðgangast. Konan sem fer með málið alla leið og leyfir samfélaginu og dómstólum að úrskurða í svona málum. Konan sem er sterk.“

Og þó að fjöldi einstaklinga sýni Hönnu Kristínu stuðning hefur dómstóll úrskurðað í málinu, allavega í þetta sinn, og hafnað nálgunarbanni.

Hvað þarf til að fá nálgunarbann?

Í pistlinum sem Hanna Kristín birtir í gær spyr hún hvað þurfi að gerast til að beiðni lögmanns hennar um nálgunarbann verði samþykkt.

„Er ekki nóg að ég hafi lagt fram kærur í nokkrum liðum um líkamlegt ofbeldi? Að það sé til áverkavottorð af líkamsáverkum mínum, nokkur? Að hann hafi í beinum orðum haft í hótunum við mig? Að hann hafi birt nektarmynd af mér á facebook? Að hann setji sig stöðugt í samband við mig allan sólarhringinn? Að hann komi upp að heimili mínu til að athuga hvort ég sé heima? Að hann sé með ágiskanir um að ég sé að hitta hinn og þennan mann og leiti þá uppi?“

Hanna Kristín segir það ólýsanlegt að vera í þessum sporum: sambland af baráttuvilja og fullkomnum skorti á þreki og depurð. Ótti, en samt öryggi að Magnús verði handtekinn, ef, þegar, eitthvað slæmt muni gerast.

„Þetta er ekkert líf fyrir þann sem þarf að þola stöðugt áreiti. Maður einangrast mikið og upplifir vanmátt gagnvart aðstæðum. Ég lít stöðugt um öxl þegar ég fer út að skokka ein. Opna hurðina heima varlega og lít í kringum mig.“

Sterk vegna barnanna

En það eru synirnir sem hjálpa henni í gegnum erfiðleikana, að vera sterk, sama hversu erfið baráttan er. „Að hlusta á hlátur drengjanna minna, óttaleysið þeirra, það fleytir mér áfram. Það hjálpar mér að vera sterk og brosa. Sama hversu erfitt þetta er.“

Engin sérstakur rökstuðningur

Arnar Þór Stefánsson, lögmaður Hönnu, segir í samtali við DV að málið verði kært til ríkissaksóknara. Hann segir að rökstuðningurinn fyrir því að nálgunarbanninu sé hafnað sé örstuttur. „Þetta er bara ein setning um að ekki séu uppfyllt skilyrði fyrir nálgunarbann. Það er enginn sérstakur rökstuðningur, þetta er bara örstutt,“ segir Arnar Þór.

Arnar Þór segir að viðbótargögn verði lögð fram þegar málið verður kært til ríkissaksóknara. „Hann hættir ekkert að hafa samband við hana, hann er stöðugt að senda einhver Facebook-skilaboð og hringja. Þetta getur ekki verið svona, hann á bara að láta hana í friði,“ segir Arnar Þór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum