fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Háskólanemi sakar Guðlaug Þór um að hafa sagt þetta: „Hvernig litist þér nú á að ég færi að kenna þér að ríða?“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 3. nóvember 2019 14:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fór á svo frábært málþing á Kynjaþingi í gær þar sem konur í stjórnmálum ræddu meðal annars hvað einkenndi orðræðu gagnvart konum í pólitík á Íslandi og þetta ýtti svo mikið á einhverja hnappa hjá mér og lét mig langa til að tjá mig um atvik sem ég hafði ekki ætlað að tjá mig um.“

Svona hefst röð tísta sem Alexandra nokkur skrifar á Twitter síðu sinni. Alexandra er háskólanemi og fór með samnemendum sínum í vísindaferð í  Utanríkisráðuneytið fyrir nokkrum vikum. Þar segist hún hafa átt í ótrúlelga fáranlegum orðaskiptum við utanríkisráðherra en hún hefur verið mikið hugsi yfir því í kjölfarið.

Hún segir Guðlaug Þór hafa haldið kynningu og eftir það hafi myndast umræður og stuð. Á einhverjum tímapunkti hafi háskólinn komið til tals og þá fer Guðlaugur að tala um hvað Háskóinn þurfi að nýta sér meira fók í atvinnulífinu svo nemendur séu betur undirbúnir fyrir þá vinnu sem þau stefna á. Þá svarar Alexandra að það sé nú ekki hlutverk háskóla að framleiða starfskrafta fyrir atvinnulífið. „Það býður í raun upp á stöðnun í samfélaginu að ætla móta háskólamenntun eftir þörfum atvinnulífsins á tilteknum tíma,“ sagði Alexandra við ráðherran.

Alexandra segir frá því í tístinu sínu hvað Guðlaugur sagði í kjölfarið á þessu. Hún segir Guðlaug Þór hafa svarað þessu með því að taka dæmi og segja: „Hvernig litist þér nú á að ég færi að kenna þér að ríða en væri hreinn sveinn en hefði lesið mér hellings til um kynlíf?”

Alexandra segir að til að byrja með sé þetta bara óviðeigandi og frekar „slísí“. „En svo er þetta líka birtingarmynd einhvers miklu stærra, segir Alexandra. „Konur eru fyrst og fremst metnar út frá því að þær séu konur, hversu ríðanlegar þær séu, hversu sætar þér séu og það er á þessum stað sem við erum komin svo ótrúleg stutt í feminískri baráttu. Þetta var ekki bara sagt til að slá mig útaf laginu heldur til að smána. Það þarf vart að taka fram að hann hefði aldrei svarað KK nemenda með þessum hætti. Hann stóð sem ráðherra í sínu eigin ráðuneyti fyrir framan hóp af háskólanemum og valdaójafnvægið er svo gígantískt og hann lék sér að því.“

„Langaði held ég aðallega að kasta þessu frá mér því með því að gera það ekki finnst mér ég vera að segja að það sé bara í lagi að svona hegðun viðgangist sem það er auðvitað alls ekki. Og svo er ég svo ótrulega þreytt á að karlar sem tali svona við konur fái að sitja á þingi kjörtímabil eftir kjörtímabil. Fannst svo leiðinlegt eftir á að hafa ekki brugðist öðruvísi við en að flissa vandræðalega því það er ALLTAF það sem man gerir í svona aðstæðum en núna er þetta komið út“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“
Fréttir
Í gær

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“