fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Elmar nýr framkvæmdastjóri Samiðnar: Lögfræðingur sem er í trésmíðanámi í kvöldskóla FB

Ritstjórn DV
Mánudaginn 21. október 2019 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samiðnar af Þorbirni Guðmundssyni sem gegndi því í þrjá áratugi. Samiðn er samband tólf aðildarfélaga iðnaðarmanna víðsvegar um landið. Þorbjörn starfar áfram á vegum Samiðnar og er í forystu sambandsins í yfirstandandi kjarasamningaviðræðum við ríki og sveitarfélög.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Samiðn sendi frá sér.

Elmar er lögfræðingur með embættispróf frá Háskóla Íslands og prófgráðu líka frá University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Hann lauk meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og viðskiptasiðfræði frá HÍ, einnig prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður.

Elmar hefur m.a. starfað í stjórnunarstöðu hjá Vodafone, 365 miðlum og var um árabil lektor við Háskóla Íslands, og starfar þar nú sem stundakennari í viðskiptafræðideild og kennir m.a. samningatækni í MBA-námi HÍ, sem og við lagadeild skólans. Þá er hann þjálfari hjá Dale Carnegie.

Í tilkynningunni segir Elmar:

„Ég tek við góðu búi af Þorbirni og mun gefa mér tíma í að kynnast nýju vinnuumhverfi. Breyttar áherslur fylgja jafnan nýjum stjórnendum en tíminn leiðir í ljós hverjar þær verða og hvernig þær birtast. Mitt hlutverk er fyrst og fremst að vinna að hagsmunum félagsmanna og annast rekstur Samiðnar (eins vel og unnt er). Ég hef sömuleiðis hug á að kynna Samiðn meira út á við og styrkja ímynd sambandsins.

Stærstu verkefnin framundan varða til dæmis breytt launakerfi félagsmanna þar sem hæfni skal líka metin til launa en ekki horft einvörðungu til starfsaldurs. Þá er mikil áskorun fólgin í því að takast á við áskoranir fjórðu iðnbyltingarinnar. Störf munu breytast, ný störf verða til og einhverjum störfum getur fækkað. Þarna blasir við að tengja iðnmenntun inn í háskólaumhverfið og þar sé ég mörg tækifæri og nauðsyn á að iðnaðarmenn og samtök okkar hafi frumkvæði í umræðu og áhrif á þróun mála.

Iðnaður og handverk hefur verið nálægt mér alla tíð. Móðir mín er gullsmiður og foreldrar mínir reka verslun á Laugavegi. Þá er bróðir minn sömuleiðis gullsmiður og segja má að í móðurættinni sé gullsmíðin fjölskylduiðn.

Sjálfur hef ég annan bakgrunn en hef kynnst samtökum og félögum í verkalýðshreyfingunni með margvíslegum hætti. Ég hef m.a. haldið námskeið og veitt ráðgjöf og aðstoð í kjarasamningum. Áhugi á iðnaði er sannarlega til staðar og kviknaði löngu áður en framkvæmdastjórastarf hjá Samiðn kom til sögunnar.

Núna stunda ég trésmíðanám á kvöldnámskeiðum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og hef fengið staðfest að miklu erfiðara er að ná tökum á því að geirnegla en að lesa almenna lögfræði!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Harmleikurinn í gærmorgun: Örvæntingarfullt símtal um páskana – myrti átta börn

Harmleikurinn í gærmorgun: Örvæntingarfullt símtal um páskana – myrti átta börn
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Rjúfum þögnina og útrýmum kynferðisofbeldi gegn börnum – Ég lofa

Rjúfum þögnina og útrýmum kynferðisofbeldi gegn börnum – Ég lofa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laun formanns VR hækkuð verulega

Laun formanns VR hækkuð verulega
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga