fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Kristján felldi 1.090 reglugerðir úr gildi – „Komdu með eldspýturnar – Við þurfum að grisja skóginn“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 21. október 2019 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskt regluverk verður að vera aðgengilegt og auðskiljanlegt segja þau Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra sem í dag kynntu aðgerðaráætlun um einföldun regluverks.

Kristján Þór hefur fellt brott 1090 reglugerðir á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Breytingarnar eru liður í einföldun regluverks sem er forgangsverkefni í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Verkefnið er unnið í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að gert verði átak í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings og lögð áhersla á skilvirka og réttláta stjórnsýslu.

„Með því að fella þessar reglugerðir brott er verið að  hreinsa  til í regluverkinu á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs. Þar með er öllum þeim sem þurfa að fylgja því auðveldað að sjá í gegnum skóginn. Við munum á næstunni vinna að enn frekari einföldun regluverks. Það er eitt af forgangsmálum í ráðuneytinu“

segir Kristján Þór.

Á blaðamannafundi í morgun  sagðist Þórdís ekki vilja að Ísland væri með þyngsta regluverk innan OECD. Kristján Þór tók undir orð Þórdísar:

„Við þurfum að grisja skóginn. Við munum fella á brott 1.090 reglugerðir,“

sagði Kristján Þór og felldi reglugerðirnar úr gildi með táknrænum hætti fyrir framan blaðamenn. Sagðist Þórdís við það tækifæri vera „smá svekkt“ yfir því að Kristján hefði ekki kveikt í reglugerðunum:

„Þetta er ekki skemmtilesning, þetta er ekki reyfari,“ sagði Kristján Þór og leit á Þórdísi:

„Komdu með eldspýturnar.“

100 verða að átta

Einföldunin er meðal annars gerð með því að uppfæra, sameina og fella brott reglugerðir, þannig að rúmlega 100 eldri reglugerðir á sviði sjávarútvegs verða að 8 nýjum. Sem gerir það að verkum að regluverk á sviði sjávarútvegs verður aðgengilegra. Einnig er um að ræða reglugerðahreinsun sem fellir brott tímabundnar reglugerðir sem hafa ekki lengur gildi.  Auk þess falla brott reglugerðir sem meðal annars hafa verið settar með stoð í lögum sem þegar hafa verið felld úr gildi. Allt er þetta liður í  fyrsta áfanga aðgerðaáætlunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til næstu þriggja ára sem lítur að einföldun regluverks.

Áformaðar lagabreytingar í samráðsgátt

„Meginverkefni okkar á að vera að horfa gagnrýnum augum á þær reglur sem hafa verið settar og fækka þeim eins og mögulegt er. Slík einföldun regluverks stuðlar að aukinni verðmætasköpun, meiri skilvirkni, meiri samkeppni, lægra verði og þar með betri lífskjörum. Hér höfum við svo sannarlega verk að vinna.“

segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en lagafrumvarp hennar um breytingar á ýmsum lögum til einföldundar regluverks er nú í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið er fyrsti áfangi af þremur í aðgerðaráætlun ráðuneytisins um einföldun regluverks á þessum málefnasviðum sem ráðgert er að standi yfir fram á mitt ár 2021.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem fela í sér að skráningum verslana verði hætt, iðnaðarleyfi og leyfi til sölu notaðra ökutækja verði lögð af, ráðherra fái heimild til að framselja vald til að veita undanþágur á grundvelli laga um samvinnufélög, auk annarra atriða sem horfa til einföldunar. Loks er lagt til í frumvarpinu brottfall 16 úreltra laga sem ekki hafa sérstakt gildi lengur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki