fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Sexföldun á jarðarförum í kyrrþey

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 26. október 2019 18:00

Fjölgun Sífellt fleiri kjósa jarðarför í kyrrþey.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jarðarförum í kyrrþey hefur fjölgað mikið. Árið 2010 fóru 43 jarðarfarir fram í kyrrþey, eða tvö prósent. Árið 2016 nálguðust þær tólf prósent og í fyrra var hlutfall jarðarfara í kyrrþey komið upp í tólf prósent, eða 258 talsins. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðasókn, finnur fyrir þessari fjölgun.

Jóna Hrönn Bolladóttir.

„Ég finn að það er fjölgun jarðarfara í kyrrþey og ég held að það séu þrjár ástæður fyrir því; hinn látni hafi verið mikil prívat manneskja og kunnað illa við stórar samkomur, það hef ég oft heyrt, og það væri algjörlega úr takti við karakterinn að halda stóra opinbera athöfn. Einnig er það vegna þess að það eru ekki til miklir peningar í dánarbúinu eða innan fjölskyldunnar og fólk á ekki val. Svo er það hópurinn sem fer stækkandi og það er fólkið sem vill hafa hlutina eins persónulega og hægt er. Það skil ég svo vel og finnst það á margar hátt jákvæð þróun. Þegar athöfnin er lítil og bara nánasta fólkið er hægt að skapa ákveðna nánd sem er mörgum gefandi. Ég held að þetta sé allt gott í bland,“ segir Jóna Hrönn og brýnir eitt fyrir þeim sem kveðja þurfa ástvin. „Það er líka vandi þegar athöfn er í kyrrþey að gleyma einhverjum sem stóð hinum látna nærri og fær ekki að kveðja og þakka fyrir sig. Þá er oft verið að hringja í ástvini og spyrja hvort viðkomandi megi koma til að sýna samkennd og heiðra minningu þess sem er farinn. Þarna þarf fólk að vanda sig svo ekki verði sárindi í samskiptum.“

Kostnaður, einsemd og ágreiningur

Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni í Reykjavík, telur að margt spili inn í þegar ákveðið er að jarðarför fari fram í kyrrþey.

„Stundum er þetta ósk frá hinum látna því hann vill ekki umstang eða láta hafa fyrir sér. Ég hef orðið var við það. Suma óar við kostnaðinum við útför og það má vel vera að það spili inn í. Yfirleitt setja menn undir sig hausinn og gera þetta án þess að kostnaður sé stærsti faktorinn, nema þegar mjög illa stendur á,“ segir Sveinn. Kostnaður við hefðbundnar jarðarfarir getur farið hátt upp í tvær milljónir, jafnvel aðeins yfir, enda í mörg horn að líta. Það þarf að birta dánartilkynningar, kaupa líkkistu, bóka tónlistaratriði, halda erfidrykkju og margt fleira. Hins vegar geta þeir sem þurfa leitað sér styrkja vegna útfarar hjá stéttar- eða sveitarfélögum.

Aðrar ástæður sem gætu spilað inn í eru einsemd eða ágreiningur meðal aðstandenda. Sveinn segist ekki hafa tekið eftir því, en að oft geti ágreiningur verið til staðar án þess að prestar taki eftir. Hann hefur hins vegar heyrt af því að aðstandendur fari þess á leit að tilteknum einstaklingum verði bannað að mæta þótt jarðarför sé auglýst.

„Ég lít þannig á að ef jarðarför er auglýst þá megi allir koma og margir sem vilja fylgja vinnufélögum, vinum, kunningjum eða skólafélögum. Ef jarðarför er ekki auglýst er ekki ætlast til að allir megi mæta. Ég hef heyrt af því að aðstandandi vilji ekki að einhver tiltekinn einstaklingur fái að vera við útför hins látna. Það getur reynst erfitt ef þetta er opinber athöfn.“

Opnari umræða um dauðann

Sveinn Valgeirsson.

Sveinn segir að oft hafi fólk á dánarbeðinum sterkar skoðanir á hvernig jarðarförinni skuli háttað.

„Ég veit það til dæmis að þessi sterki vilji sumra til að hafa jarðarför í algerri kyrrþey er ekkert endilega alltaf það sem aðstandendur hefðu viljað. Yfirleitt virða aðstandendur vilja hins látna.“

Jóna Hrönn telur jákvæða breytingu hafa orðið í samfélaginu um hvernig talað er um dauðann og hinstu kveðjustundina.

„Á undanförnum árum hefur umræða um dauðann og form á hinstu kveðju breyst. Það er afskaplega jákvæð breyting og gerir það að verkum að allt verður hlaðið meiri merkingu. Það var til dæmis átak innan Þjóðkirkjunnar til að hvetja fólk til að setja niður hvernig það vildi hafa endalokin í þessum heimi og það var gefinn út bæklingur sem heitir Val mitt við lífslok. Þar er hægt að setja niður hvort fólk vill kistulagningu eða ekki, umbúnaður í kistu, hvar útförin fer fram, hvort það á að vera jarðarför eða bálför, val á tónlist, hvort það eigi að vera erfidrykkja og þá hvernig og upplýsingar vegna minningarorða,“ segir Jóna Hrönn og heldur áfram. „Það skiptir margt eldra fólk miklu máli að ganga vel frá hlutunum og oft er líka sú hugsun að íþyngja ekki ástvinum sínum þegar dauðinn knýr dyra meira en þörf er á, ég finn oft þessa miklu hógværð og auðmýkt þegar ég tala við eldra fólk á dánarbeðinum. Þegar ég undirbý útfarir og fullorðið fólk er að kveðja aldraða foreldra og ekkert liggur fyrir og það eru uppi ýmis sjónarmið þá kveð ég oft með þeim orðum að þau ættu, á meðan heilsan er góð að dauðinn ekki á dagskrá, að setja niður óskir sínar við lífslok og ræða við maka sinn, af því að því fylgir ákveðinn léttir fyrir þau sem eftir lifa og þurfa að undirbúa útförina, ég tala nú ekki um þegar dauðinn kemur skyndilega og ástvinir eru kannski þjakaðir af sorg og dofnir, þá er afar mikilvægt að þetta sé á hreinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag