fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Töskuþjófur á Suðurnesjum gómaður: Eftirlitsmyndavélarnar komu upp um hann

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. september 2019 08:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilkynnt var um þjófnað á ferðatösku til lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Viðkomandi hafði skilið eftir ferðatösku bak fyrir bifreið sína fyrir utan hótel í umdæminu. Þegar eigandinn vitjaði svo töskunnar var hún horfin.

Í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að á eftirlitsmyndavélum hafi sést hvar ökumaður annarar bifreiðar kom aðvífandi, gramsaði í töskunni og hafði hana svo á brott með sér.

„Lögregla hafði uppi á manninum á höfuðborgarsvæðinu og í viðræðum þeirra viðurkenndi hann að vera með töskuna í bifreið sinni.  Honum var gert að skila henni á stundinni og ætlaði hann að verða við því,“ segir lögregla.

Þá tilkynntu erlendir ferðamenn um þjófnað á bakpoka á höfuðborgarsvæðinu. Í honum voru dróni og fleiri munir.

Enn fremur var tilkynnt um innbrot í bát sem lá við festar í Grindavíkurhöfn. Sterk verkjalyf voru tekin úr lyfjakassa en einskis annars var saknað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“